Eitt af því sem einkennir gott samfélag er að þar standa íbúar vörð hver um annan. Til að gera betur í málaflokki fatlaðra gerðist Vestmannaeyjabær tilraunasveitarfélag um þjónustu við fatlaða árið 1997. Árið 2011 var sá mikilvægi málaflokkur alfarið færður yfir á sveitarfélögin. Á þessum tíma hefur margt áunnist enda ríkur vilji hjá öllum bæjarfulltrúum að gera vel og nýta það fjármagn sem sett er í málaflokkinn sem best fyrir þjónustuþegana.
Í Vestmannaeyjum njóta á milli 50-60 þjónustu í málaflokki fatlaðra. Markmið þjónustunnar er að tryggja fötluðu fólki jöfn réttindi og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna og skapa því skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi. �?jónustan er fjölbreytt og hópurinn er er langt frá því að vera einsleitur hvað varðar þarfir. Mæta verður hverjum og einum út frá þörfum hans sem kallar á aukinn fjölbreytileika í þjónustu en svo dæmi séu tekin má nefna dagvistun, hæfingu og atvinnu með stuðningi, búsetuþjónustu, félagsleg liðveiðslu, frekari liðveislu, stuðningsfjölskyldur, skammtímavistanir, akstursþjónustu og sérhæfða ráðgjöf. Í Vestmannaeyjum er metnaður til að gera vel í þjónustu við bæjarbúa.
Framgangur í þessum málaflokki hefur verið á uppleið og miklu fleytt fram. Rík áhersla hefur verið lögð á bætt ferlimál fatlaðs fólks bæði innan stofnana bæjarins og í gatnakerfinu. Lyftur hafa verið settar upp í stofnunum og húsnæði breytt. Gangstéttir og gangbrautir hafa verið lagaðar með tilliti til aðgengis. Akstursþjónustan var bætt með því að kaupa sérútbúna bifreið og ráða starfsmann til að sinna þeirri þjónustu. Atvinnumál fatlaðra hafa verið styrkt með eflingu atvinnuþátttöku fatlaðs fólks innan stofnana bæjarins og hjá fyrirtækjum í bænum. Aukin verkefni hafa komið inn á verndaðan vinnustað með tilkomu Endurvinnslunar.
Alltaf má samt gera betur. Meirihluti sjálfstæðismanna gekk til seinustu kosninga með þau loforð að bæta húsnæðismál fatlaðra og það verður gert. Blessunarlega er mikil samstaða innan bæjarstjórnar um þessi mál og því fátt til vanbúnaðar hvað þetta varðar. Um leið þarf að efla það góða og mikla hæfingarstarf sem unnið er í málaflokknum og búa fötluðum fyrsta flokks umhverfi þar sem slíkt fær þrifist. Bjarni