Það fór varla framhjá mörgum að í dag var Landeyjahöfn formlega tekin í notkun með jómfrúarferð Herjólfs og vígsluathöfn hafnarinnar. Fjölmargir voru viðstaddir athöfnina, bæði Vestmannaeyingar sem fóru með Herjólfi upp í Landeyjahöfn, sem og aðrir gestir af fastalandinu. Fólkið naut veðurblíðunnar í Landeyjunum í dag en Herjólfur sigldi svo aftur til Eyja klukkan 19:00. Hægt er að sjá myndbönd og myndir frá deginum hér að neðan.