Flikkað upp á Óttar selfangara, áður Ísleif VE

Útgerðarfyrirtækið Norse Marine AS í Tromsö hefur heldur betur flikkað upp á ásýnd Ísleifs VE-63 sem Vinnslustöðin seldi til Noregs í apríl 2016. Skipið fékk nafnið Ottar og hefur bæði verið notað við selveiðar í Norðuríshafinu og til flutninga hráefnis til bræðslu í Norður-Noregi.

Ottar kom á dögunum úr klössun í Klaipeda í Litháen. Við rákumst á myndir af skipinu í höfninni í Álasundi á leiðinni norður eftir, til heimahafnar í Tromsö. Þær eru fengnar að láni af Fésbókarsíðu Frode Adolfsens. Í Fiskeribladet er svo greint frá því að Ottar fari beint á selveiðar í Norðuríshafinu.

Kaupandi Ísleifs og útgerðarmaður skipsins sem nú heitir Ottar er Karl Magnus Pettersen, einn af þekktari selaföngurum Norðmanna og talsmönnum selveiðanna sem eru býsna umdeildar í Noregi. Í Morgunblaðinu birtist frásögn 7. apríl 2005 af norska selveiðiskipinu Polarstar í viðgerð í Slippstöðinni á Akureyri. Nefndur Karl Magnus var þar skipstjóri og myndaður glaðbeittur í brú skipsins á Akureyri. Á myndinni hefur kappinn mun frekar ímyndaryfirbragð liðsmanns í þungarokkshljómsveit en selveiðimanns. Í samtali við blaðið kvaðst hann vita að Íslendingar væru fiskimenn góðir en ekki skilja af hverju þeir stunduðu ekki selveiðar því nóg væri af sel í íslenskri lögsögu.

Ísleifur VE-63 var síðustu ár sín í íslenska flotanum eingöngu notaður sem hleri við partrollveiðar á móti Sighvati Bjarnasyni VE eða Kap VE og hætti veiðum á vegum Vinnslustöðvarinnar 2015.

  • Á myndunum sést landað út Ísleifi, þá eru tvær af skipinu á leið frá Eyjum til nýrra heimkynna í Noregi, úrklippa úr Morgunblaðin frá 2005 og svo tvær myndir frá Frode Adolfsen af Óttari með nýja ásýnd eftir viðgerðir og fegrunaraðgerðir í skipasmíðastöð í Litháen.

Nýjustu fréttir

Vorlykt í lofti
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins lagður fyrir fulltrúaráðið
Jói Listó – Ótrúlegur ferill mikils listamanns
Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.