Hreinsunardagur ÍBV

hasteinsvollur_2017.jpg

Á morgun, laugardag á milli kl. 13 og 15 ætlar ÍBV að halda Hreinsunardag.  Mæting er við Hásteinsvöll og á að taka til á því svæði og þar í kring. Í lokin verður öllum boðið  í grill og þá verður einnig ís í boði fyrir börnin. Í tilkynningu frá félaginu eru bæjarbúar hvattir til að […]

ÍBV og Valur mætast í Eyjum

DSC_5134

Annar leikur ÍBV og Vals í undanúrslitaeinvígi liðanna verður leikinn í Eyjum í kvöld. Valur hafði sigur í fyrsta leiknum og leiðir því einvígið. Leikurinn hefst klukkan 19:40 en “Fanzon” opnar kl. 18:30, þar sem hægt verður að fá Pizzur og veigar frá Ölgerðinni. (meira…)

Íbúum fjölgar í Eyjum

leikvollur_born_krakkar_IMG_2413

„Í íbúaskránni hjá okkur eru alls 4662 íbúar skráðir.“ segir starfsmaður Vestmannaeyjabæjar aðspurður um íbúatölur í bæjarfélaginu í gær. Síðast þegar Eyjar.net kannaði íbúafjöldann í byrjun árs voru íbúar í Vestmannaeyjum hins vegar 4626 talsins og hefur því fjölgað um 36 í bænum á um þremur og hálfum mánuði. Ekki verið fleiri í 28 ár […]

Ráðherra ​heilsaði upp á VSV-fólk í Barcelona

1-bjarkey_vsv_is

Nýbakaður matvælaráðherra ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, birtist í sýningarbási Vinnslustöðvarinnar á sjávarútvegssýningunni miklu í Barcelona og tók fólk tali. Í samtali við Vinnslustöðvar-vefinn segir Björn Matthíasson, rekstrarstjóri VSV Seafood Iceland ehf. að sölu- og markaðsfólk VSV í öllum heimshornum hafi verið á sýningunni enda mikilvægur vettvangur til að sýna sig og sjá aðra. „Við […]

Eyjamenn úr leik

DSC_0431

Grindvíkingar slógu ÍBV út úr Mjólkurbikarnum á Hásteinsvelli í dag. ÍBV komst yfir í leiknum með marki frá Alex Frey Hilmarssyni á 13. mínútu, en gestirnir jöfnuðu á 29. mín­útu með marki frá Eric Vales, sem var síðan rekinn af velli á 42. mínútu. Grindvíkingar léku því manni færri það sem eftir lifði leiks en […]

Nýtir tónlistina til þess að hafa jákvæð áhrif á samfélagið

IMG_4695

Líkt og greint var frá fyrr í dag var Birgir Nielsen útnefndur bæjarlistamaður Vestmannaeyja fyrir árið 2024. Birgir sagði við þetta tilefni að hann væri þakklátur fyrir að njóta þess heiðurs að hljóta nafnbótina bæjarlistamaður Vestmannaeyja 2024. Áherslan lögð á náttúru Vestmannaeyja „Ég hef í gegnum tíðina haft mikla ástríðu í að skapa og flytja […]

Veiðarnar ganga mjög vel

gullberg_2022

„Kolmunnaveiðar ganga mjög vel, veiðin hefur verið mjög góð þannig að túrarnir hafa verið stuttir.“ Þetta segir Sindri Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar í samtali við Eyjar.net. Hann segir að búið sé að taka á móti ca. 10.000 tonnum hjá Vinnslustöðinni. „Sighvatur er í sínum síðasta túr. Verið er að landa úr Gullberg og hann fer […]

Birgir Nielsen bæjarlistamaður Vestmannaeyja

IMG_4727

Bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2024 er Birgir Nielsen. Þetta var tilkynnt við hátíðlega athöfn í Eldheimum í morgun. Birgi Nielsen þarf vart að kynna en hann hefur frá unga aldri verið viðloðandi tónlist og ákvað snemma á lífsleiðinni að helga lífi sínu þeim starfsvettvangi. Birgir er fæddur árið 1974 og varð því fimmtugur í febrúar síðastliðnum. […]

Messi og Vestmannaeyjar

samsett (1000 x 667 px) (5)

Það má með sanni segja að fjárfestar hafi trú á því sem er að gerast í Vestmannaeyjum. Ekki er langt síðan að kauphallarfyrirtækið Kaldalón hf. og stórir innlendir fjárfestar líkt og aðilar tengdir Eskju og Jón Ásgeiri keyptu eignir á vel yfir 1000 milljónir í Eyjum. Má þar nefna eignir eins og Hótel Vestmannaeyjar, Gamla […]

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.