Myndband við Leiðin heim

Bjartmar Guðlaugsson semur Goslokalagið í ár en lagið heitir Leiðin heim og textann á Bjartmar. Nú er búið að búa til myndband við lagið og er hægt að horfa á myndbandið hér að neðan og lesa textann til að glöggva sig betur á laginu. Bjartmar kemur víða við í textanum, á stöðum sem eldri Eyjamenn […]

Krefjast skaðabóta vegna útgerðarkaupa

Tekið var fyrir mál Vinnslustöðvarinnar hf. í Eyjum gegn fv. stjórnarmönnum fyrirtækisins, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Það er Stilla útgerð hf., einn hluthafa Vinnslustöðvarinnar, sem höfðar málið í nafni fyrirtækisins, skv. sérákváðum hlutafjárlaga. (meira…)

Jafntefli á Hlíðarenda

Valur tók á móti ÍBV í hörkuleik í kvöld. ÍBV komst yfir með marki frá Tonny Mawejje en hann hefur svo sannarlega verið á skotskónum undanfarið með landsliði Úganda. Kolbeinn Kárason kom inn sem varamaður fyrir Val og jafnaði metin í seinni hálfleik og jafntefli því niðurstaðan. (meira…)

Auglýst eftir aðstoðarskólastjóra

Á vef Vestmannaeyja er nú auglýst eftir aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Vestmannaeyja, yngri deild í Hamarsskóla. Staðan losnaði eftir að Sigurlás Þorleifsson, sem áður gengdi stöðunni, tók við sem skólastjóri GRV. Umsóknarfrestur er til 8. júlí. (meira…)

Eyjamenn sækja Val heim í kvöld

Karlalið ÍBV sækir Val heim á Vodafonevöllinn í kvöld en leikur liðanna hefst klukkan 18:00. Valur er í fjórða sæti með 14 stig en ÍBV í því sjötta með 11. Það er eftir miklu að slægjast fyrir bæði lið en með sigri geta Valsmenn komist upp í annað sæti Pepsídeildarinnar. Eyjamenn þurfa hins vegar á […]

Gunnar Heiðar skoraði fyrir Norrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði fyrir Norrköping þegar liðið gerði 2:2 jafntefli gegn Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Gunnar Heiðar skoraði fyrra mark Norrköping á 59. mínútu og jafnaði þá leikinn 1:1. Fjórum mínútum síðar lagði Eyjamaðurinn upp mark fyrir Christopher Telo sem kom liðinu yfir. (meira…)

Veiðigjald hækkar í uppsjávarveiðum en lækkar í bolfiskveiðum

Fyrir Alþingi liggja tillögur ríkisstjórnarinnar um breytingar á sérstöku veiðigjaldi þar sem skattlagning á uppsjávarveiðar hækkar en lækkar á bolfiskveiðar. Samkvæmt núgildandi lögum um sérstakt veiðigjald hefði Vinnslustöðin átt að greiða 850.966 milljónir króna árið 2013 en með væntanlegum lögum verður sú upphæð 820.365 milljónir. Ísfélag Vestmannaeyja hefði átt að greiða samkvæmt eldri lögum 1.051.563 […]

Tonny tryggði �?ganda aftur sigurinn

Tonny Mawejje, leikmaður ÍBV hefur heldur betur reynst þjóð sinni vel síðustu daga á knattspyrnuvellinum. Tonny tryggði Úganda sigurinn á Angóla í dag í undankeppni HM. Angóla komst yfir snemma í síðari hálfleik en Úgandamenn jöfnuðu sjö mínútum fyrir leikslok. Þegar mínúta var eftir af venjulegum leiktíma stangaði Tonny svo boltann inn af stuttu færi […]

Pæjumóti TM lauk í dag

Pæjumótið kláraðist í dag. Mótinu var slitið á lokahófi í íþróttamiðstöðinni af Írisi Róbertsdóttur, varaformanni ÍBV. Veitt voru verðlaun fyrir efstu þrjú sætin, ásamt því að prúðasta liðið og efnilegasti leikmaðurinn var valin. Það var ein nýjung þetta árið, en haldin var myndakeppnni á milli liða og sigurvegari hennar var krýndur í upphafi lokahófs. Lið […]

Breiðablik sigraði ÍBV 3-1

Sannkallaður stórleikur fór fram á Kópavogsvelli í kvöld þegar Breiðablik mætti ÍBV en liðin voru í 2. og 3. sæti fyrir leikinn. Leikurinn fór frekar rólega af stað og kom ekki fyrsta skot ÍBV fyrr en eftir 15. mínútur. Fyrsta alvöru færi Eyjakvenna kom minútu síðar þegar Sísí Lára sendi boltan á Shaniku Gordon sem […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.