Minnihlutastjórn Framsóknar með stuðningi Sjálfstæðisflokks?

„Ég hef velt því fyrir mér hvort að ekki væri rétt að gefa Framsóknarflokknum færi á að standa við stóru orðin og hrinda í framkvæmd því loforði sem kjósendum var gefið. Svo mikið er víst að ég vona innilega að til þess geti komið. Þannig væri hægt að gefa þeim fyrirheit um að þeir verði […]

Stórdansleikur með Sálinni á morgun

Ein allra vinsælast hljómsveit Íslands, Sálin hans Jóns míns verður með stórdansleik í Höllinni á morgun, laugardag. Sálin hefur alla tíð átt stóran aðdáendahóp í Vestmannaeyjum og sem dæmi stóðu Eyjamenn að stofnun aðdáendaklúbbs sveitarinnar á sínum tíma. Sálverjar hafa einnig haldið tryggð við Eyjarnar, komið reglulega hingað og haldið böll. (meira…)

Takk fyrir okkur!

Við þökkum kjósendum í Suðurkjördæmi fyrir það mikla traust sem okkur var sýnt í nýliðnum kosningum. Markmið okkar um fjóra þingmenn náðist, hópurinn er nú klár og fjölmörg verkefni sem bíða úrlausnar um allt kjördæmi. Við viljum þakka þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem lögðu hönd á plóginn í kosningabaráttunni. Ykkar framlag, baráttuhugur og stuðningur skipti sköpum. […]

ÍBV liðunum spáð um miðja deild

Karlaliði ÍBV er spáð 7. sæti og kvennaliðinu 5. sæti í árlegri spá forráðamanna liðanna í Pepsídeildum karla og kvenna. Spáin var gerð opinber á kynningarfundi deildanna í dag. FH er spáð sigri í Íslandsmótinu í Pepsídeild karla en Stjörnunni í Pepsídeild kvenna. Þess má geta að bæði Fótbolti.net og 433.is spáðu ÍBV 7. sæti […]

�?tsýnið úr Herjólfi það fallegasta

Markvörður ÍBV, David James er í stóru viðtali í Monitor og prýðir jafnframt forsíðu blaðsins. James fer fögrum orðum um Ísland og íslenska náttúru og rifjar m.a. upp Herjólfsferð sem honum fannst mikið til koma. „Ég fór í ferjuna um daginn og það var ótrúlegt. Himinninn og hafið, allt var skærblátt, tunglið var á lofti […]

KFS úr leik í bikarnum

KFS er úr leik í bikarnum eftir að hafa tapað fyrir Berserkjum í 1. umferðinni en leikurinn fór fram í Reykjavík. Lokatölur urðu 6:2 fyrir Berserki, sem er varalið Víkings í Reykjavík. Berserkir komust í 5:0 áður en Sæþór Jóhannesson náði að minnka muninn. Heimamenn bættu sjötta markinu við en Aron Hugi Helgason minnkaði muninn […]

Enginn búsettur í Eyjum á þing

Enginn þingmaður af þeim tíu sem taka sæti á Alþingi úr Suðurkjördæmi, er búsettur í Vestmannaeyjum. Sam­kvæmt því sem næst verður komist er þetta aðeins í annað sinn í sögu Alþingis sem það gerist. Af tíu þingmönnum í Suður­kjör­dæmi, koma sjö frá ­Reykja­nesi. ­Enginn þingmaður er úr austurhluta kjördæmisins og enginn frá Vest­manna­eyjum. Þingmanna­hópurinn er […]

Pálmi Freyr tók veðrið í síðasta sinn á miðnætti

Á miðnætti í gærkvöldi tók Pálmi Freyr Óskarsson, veðurathugunarmaður í Stórhöfða, veðrið í síðasta sinn. Þar með er lokið rúmlega 100 ára sögu veðurathugunarmanna á Stórhöfða og er Pálmi Freyr fjórði ætt­liðurinn í beinan karllegg sem gegnir starfinu. Héðan í frá taka við sjálfvirkar athuganir sem gefa upp vindhraða og hitastig en lýsing á sjólagi […]

�?tla að vinna vörur úr geitamjólk

Geiturnar þrjár ehf., nýtt sprota­fyrirtæki í Eyjum, fékk hæsta styrk úr sjóðnum Atvinnumál kvenna en úthlutunin fór fram á dögunum. Skil­yrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í eigu kvenna og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun. Fyrir­tækið Geiturnar þrjár ehf. eiga þær Berglind Sigmarsdóttir, Ragnheiður Svein­þórs­­dóttir og Heather Philp, sem eru allar búsettar hér […]

Erlingur veltir enn vöngum

Erlingur Richardsson, þjálfari karlaliðs ÍBV, liggur enn undir feldi og veltir fyrir sér tilboði frá austurríska A-deildarliðinu SG Insignis Westwien um að gerast þjálfari þess á næsta keppnistímabili. Rúm vika er liðin síðan félagið hafði samband við Erling. „Ég er enn að velta þessu fyrir mér og reikna ekki með að svara af eða á […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.