Gunnar Heiðar sjóðandi heitur í byrjun tímabils

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði tvö mörk í kvöld og lagði upp tvö þegar Norrköping vann Häcken 4:2 í sænsku úrvalsdeildinni. Gunnar Heiðar hefur heldur betur farið vel af stað eftir gott tímabil í fyrra þegar hann varð næst markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar. Gunnar hefur nú skorað fimm mörk í fyrst sex leikjum tímabilsins og virðist […]

Eyjamenn hvattir til að sækja um

Frestur til að sækja um verkefna-þróunarstyrki á vegum Sóknaráætlunar og Vaxtarsamnings Suðurlands, þetta vorið, er til 6. maí n.k. eins og auglýst hefur verið. Að sögn Finnboga Alfreðsson hjá SASS, hafa honum borist þrjár fyrirspurnir frá aðilum í Vestmannaeyjum og eru þær ennþá í ferli. Mikið er um fyrirspurnir og vangaveltur allstaðar af Suðurlandi, og […]

Hrun á fylgi Samfylkingar í Suðurkjördæmi

Í Morgunblaðinu í dag er samantekt á hugsanlegri niðurstöðu Alþingiskosninganna ef miðað er við síðustu könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Í Suðurkjördæmi má búast við nokkrum breytingum samkvæmt könnuninni en í kjördæminu er Framsóknaflokkurinn stærstur. Samfylkingin tapar 18% fylgi í kjördæminu frá því í kosningunum 2009 og Vinstri græn ná ekki manni á þing í Suðurkjördæmi […]

Bjartey Gylfadóttir bæjarlistamaður 2013

Myndlistakonan Bjartey Gylfadóttir er bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2013. Útnefningin fór fram í sal Listaskóla Vestmannaeyja í dag en Bjartey tekur við sem bæjarlistamaður af Leikfélagi Vestmannaeyja, sem hlaut útnefninguna í fyrra. (meira…)

�?að sem allir eru að tala um

Nú er stuttri en lærdómsríkri kosn­ingabaráttu að ljúka. Hún hefur verið um margt skemmtileg en mest hefur mér fundist hún fróðleg. Nokkur mál standa upp úr sem ­lykilmál í hugum fólks fyrir kom­andi kosningar. (meira…)

Eitt og annað um heilbrigðisþjónustuna

Það kom fram í fréttum RUV um daginn að Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja (HSV) sé rekin með 100 milljóna króna halla. Eflaust hugsa flestir sem að skoða þá frétt að þetta sé eitt annað dæmið um stofnun sem að skorið hefur verið niður hjá eins og öðrum heilbrigðisstofnunum landið um kring. Staðan er hins vegar slæm hjá […]

Minnast kapteins Kohl

Í dag, sumardaginn fyrsta verður þess minnst að 160 ár verða þá liðin frá því kapteinn Kohl var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum. Kohl stofnaði Herfylkingu Vest­mannaeyja, en megintilgangur hennar var að halda uppi röð og reglu og verj­ast árásum sjóræningja. Liðsmenn Her­fylkingar Vestmannaeyja stund­uðu heræfingar og íþróttir af kappi og stóðu auk þess fyrir fjölskylduhátíðum […]

Við viljum vinna fyrir Suðurkjördæmi

Kæru íbúar í Suðurkjördæmi. Síðustu vikur hafa verið afar ánægjulegar og fróðlegar fyrir okkur frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Við höfum heimsótt fjölmarga vinnustaði, hitt fólk, haldið fundi og átt samtal við fleiri hundruð íbúa kjördæmisins. Við þökkum ykkur öllum fyrir hlýjar móttökur og skemmtilegar stundir síðustu vikur. Eftir ferðalög okkar um kjördæmið stendur upp úr […]

Jón Gunnlaugur og Svavar saman með kvennaliðið

Jón Gunnlaugur Viggósson mun starfa við hlið Svavars Vignissonar en þeir munu sjá um þjálfun kvennaliðs ÍBV í handbolt. Svavar hefur þjálfað liðið undanfarin ár en Jón Gunnlaugur þjálfaði síðast FH, sem mætti ÍBV í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. (meira…)

Andlegt ævintýri Heilunarfélags Íslands

Heilunarfélag Íslands leggur upp í Andlegt ævintýri á morgun, fimmtudaginn 25. apríl í Skátaheimilinu við Faxastíg milli klukkan 13 og 17. Þar verður m.a. boðið upp heilun, reiki-heilun, blómadroparáðgjöf, tarot lestur, miðlun, svæðanudd, höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Aðgangseyrir er aðeins 2.000 krónur en dyrum verður lokað 13:30. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.