�?llum boðið um borð að skoða skipið

Veðurguðirnir ætla að heilsa nýju skipi í björtu og fallegu veðri því ekki er annað að sjá en að Vestmannaeyjar muni skarta sínu fegursta þegar Bergey VE 544 siglir inn í höfnina klukkan 18.44 í kvöld. (meira…)

Furðufata- og búningadagur í dag

Í dag, mánudaginn 13. ágúst, verður búningadagur á gæsluvellinum Strönd. Starfsfólk og krakkar á aldrinum tveggja til sex ára eru hvött til að mæta í furðufötum. (meira…)

Eyjamenn féllu aftur niður í 2. deild

Golfklúbbur Vestmannaeyja féll að nýju í 2. deild eftir að hafa tapað viðureign sinni gegn Golfklúbbi Akureyrar en Golfklúbburinn Setberg fylgir Eyjamönnum niður í 2. deild. Það var hins vegar Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar sem fór með sigur af hólmi í sveitakeppninni. (meira…)

Bergey til heimahafnar kl. 18.44 á morgun

Sigling Bergeyjar 544, nýtt skip sem Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum lét smíða í Póllandi, ætlar standast áætlun. Um tíma leit út fyrir að skipið kæmi ekki fyrr en seint annað kvöld og átti að taka það inn á þriðjudagsmorguninn. (meira…)

Hemmi og Gunnar Heiðar blogga um boltann

Í tilefni af því að 365 er að hefja sýningar á enska boltanum hefur fréttavefurinn Vísir.is farið af stað með bloggsíður nokkurra landsliðsmanna í knattspyrnu en frá þessu segir á fréttavefnum. Meðal þeirra sem munu blogga eru Hermann Hreiðarsson, sem leikur með Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem leikur með Hannover í […]

Glæsilegur útisigur á Stjörnunni og ÍBV enn í baráttunni

ÍBV vann nauðsynlegan og glæsilegan útisigur á Stjörnunni í kvöld þegar liðin mættust á gervigrasvellinum í Garðabæ. Lokatölur urðu 2:4 en Ian Jefss gerði tvö marka ÍBV, auk þess sem Atli Heimisson og hinn ungi varnarmaður Arnór Ólafsson skoruðu sitt markið hvort. Óhætt er að segja að síðari hálfleikur hafi verið fjörlegur eftir markalausan fyrri […]

Naumt tap fyrir GSE

Eyjamenn töpuðu naumlega fyrir Golfklúbbnum Setberg í 2. umferð sveitakeppni í golfi, 3:2. Úrslit í viðureigninni réðust ekki fyrr en á annarri holu í bráðabana milli þeirra Gunnars Geirs Gústafssonar, GV og Hjartar Brynjarssonar, GSE en Hjörtur hafði betur og tryggði sínum mönnum sigurinn um leið. (meira…)

Er að leysa eigin samgöngumál

Í dag kom Magnús Kristinsson, útgerðarmaður, til Eyja á nýjum farkosti, þyrlu sem hann keypti í Bandaríkjunum. Segist hann með því vera að leysa eigin samgöngumál þar sem pólitíkin hefi brugðist í þeim efnum. (meira…)

Arnór bakari beðinn afsökunar

Í Fréttum í gær var gluggað skattskrá Vestmannaeyja 2007. Farið var af handhófi yfir skrána og nöfnum síðan raðað í stafrófsröð. Útfrá álögðu útsvari voru síðan reiknuð út meðallaun viðkomandi. Við þessa útreikninga urðu þau leiðu mistök að rangt var farið með útreikning á launum Arnórs Hermannssonar, Vestmannabraut 69. Er hann sagður vera með kr. […]

Eyjamenn steinlágu í fyrstu umferð

Sveit Golfklúbbs Vestmanneyja tapaði 4-1 í fyrstu umferð sveitakeppninnar í golfi en Eyjamenn léku þá gegn Golfklúbbi Suðurnesja. Klúbbmeistari GV, Gunnar Geir Gústafsson var sá eini sem sigraði í sinni viðureign en hann vann eftir bráðabana. Þó voru þeir Þorsteinn Hallgrímsson og Rúnar Þór Karlsson nálægt því að landa sigri en viðureign þeirra í fjórmenningi […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.