Forsala aðgöngumiða framlengd um einn sólarhring

Þjóðhátíðarnefnd hefur ákveðið að framlengja forsölunni um einn sólahring. Henni lýkur þá á miðnætti á morgun, þriðjudag. Hægt er að kaupa miða í öllum verslunum 10-11, Í BT á Selfossi og Ísafirði. Í Eyjum eru miðarnir seldir í Skýlinu. (meira…)

Drífandi leitar eftir sameiningu við AFL

Drífandi, stéttarfélag í Vestmannaeyjum, hefur leitað eftir sameiningu við AFL – Starfsgreinafélag Austurlands. Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs, segir að með þeim breytingum sem orðið hafa á þjóðfélaginu og þeim kröfum sem gerðar eru í dag, þá sé viss styrkur í stærðinni. (meira…)

Fjölda gaskúta rænt

Átta til tíu gaskútum var stolið úr geymslu við Olís í Þorlákshöfn síðastliðinn fimmtudag. Málið er óupplýst en lögregla telur að þjófurinn hyggist selja þá á öðrum bensínstöðvum. Kútarnir voru allir fullir af gasi. (meira…)

Bílvelta í Grímsnesi

Kona var flutt á heilbrigðisstofnun Suðurlands með minniháttar meiðsl eftir bílveltu á Biskupstungnabraut, rétt austan við afleggjarann að Þingvöllum, í dag. Lögregla telur að konan hafi misst stjórn á bílnum í beygju með fyrrgreindum afleiðingum. (meira…)

Vinn eins og vitleysingur fyrir skólagjöldunum

Selfyssingurinn Árni Grétar Jóhannson hefur fengið inngöngu í leikstjóranám í Rose Bruford leikhússkólann í London. Árni er einn sex umsækjenda sem valinn var úr stórum hópi en aðeins einn eða tveir erlendir nemendur komast inn á hverju ári. (meira…)

Mikið bókað á þjóðhátíð

Dalurinn.is hafði samband við Flugfélag Íslands rétt í þessu og var gríðarlega mikið bókað og vegna fárra sæta þá var farið að bóka töluvert á fimmtudeginum sem og laugardag. Ljóst þykir að straumurinn liggi til Eyja þetta árið og fólk staðráðið að taka þátt í stærstu og veglegustu útihátíð landsins miðað við bókanir á ferðum. […]

Nafn mannsins sem lést

Sá sem lést eftir árekstur á Biskupstungnabraut á laugardag hét Gunnlaugur Björnsson fæddur 1977. Gunnlaugur bjó í foreldrahúsum í Hveragerði. Hann var ókvæntur og barnlaus. (meira…)

Verslunarmannahelgin að mestu þurr

Fundur var settur kl. 16:10 fimmtudaginn 19. júlí í Veðurklúbbi Lundar á Hellu, af Einari Enokssyni formanni, sem bauð alla velkomna. Margrét Bjarnadóttir ritar fundargerð. Jón Þórðarson, aðstoðarmaður, sagði í upphafi fundar að hann hefði hitt skemmtanaglatt fólk sem óskaði eftir veðurspá frá klúbbnum fyrir verslunarmannahelgina, sem er jú innan skamms. Reynt verður að verða […]

Sólheimaskátar til Bretlands

Lokaundirbúningur Skátafélags Sólheima fyrir Alheimsmót skáta í Highland Park Englandi stóð yfir þegar meðfylgjandi mynd var tekin en á henni eru þau Rósý, Lóa, Siggi Gísla, Kristján Már og Gulla í efri röð en Sigrún og Valgeir í þeirri neðri. (meira…)

Toby fylgir Á móti sól á �?jóðhátíð

Hljómsveitin Á móti sól mun ásamt Tuborg og Fm957 halda upphitunardjamm fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja miðvikudaginn 1. ágúst. Partýið er á Gauki á stöng og lofar hljómsveitin mikilli Þjóðhátíðarstemmningu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.