Gunnar Heiðar skoraði gegn Real

Gunnar Heiðar Þorvaldsson lét að sér kveða í æfingaleik í gær með þýska liðinu Hannover sem tók á móti spænska meistaraliðinu Real Madrid í Þýskalandi. Landsliðsframherjinn kom inná sem varamaður í síðari hálfleik þegar þýska liðið var marki undir og skoraði Gunnar annað mark leiksins á 63. mínútu. Vestmannaeyingurinn hafði aðeins verið inni á vellinum […]
Innréttað sem veitingastaður
Greiðlega gekk að flytja eitt elsta hús Selfossbæjar, Ingólf, frá Eyravegi yfir í á leikhúslóðina við Sigtún. Húsið er byggt árið 1926 og hefur alla tíð staðið við Eyrarveg. (meira…)
Steindautt jafntefli

Eyjamenn náðu ekki að færa sig upp í fjórða sæti þegar þeir tóku á móti Fjarðarbyggð. Aðeins munar einu stigi á liðunum, ÍBV er í fimmta sæti og Fjarðarbyggð sæti ofar en með sigri hefðu Eyjamenn færst nær toppliðunum þremur. Leikurinn í kvöld á Hásteinsvellinum var hins vegar afar bragðdaufur þar sem gestirnir lögðu alla […]
Herjólfsbær fær hlutverk

Nú hefur verið ákveðið að munavarsla á Þjóðhátíð verði til húsa í Herjólfsbæ. Munavarslan hefur verið mörgum þyrnir í augum enda verið staðsett í þremur gámum sem hafa verið staðsettir á hátíðarsvæðinu. Auk þess hefur verið mikil fyrirhöfn í að koma aðstöðunni upp en með tilkomu Herjólfsbæjar er sú vinna úr sögunni. (meira…)
Bæjarráð vill flýta höfn í Bakkafjöru

Bæjarráð tók í dag á fundi sínum til umfjöllunar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um framtíðarsamgöngur við Vestmannaeyjar. Bæjarráð leggur ríka áherslu á að framkvæmdum við gerð ferjuhafnar í Bakkafjöru og smíði nýs Herjólfs verði flýtt eins og kostur er þannig að hægt verði að hefja siglingar milli Eyja og Bakkahafnar árið 2009.Ályktunina má lesa í heild sinni […]
Ræðið við börnin um skaðsemi áfengis- og vímuefnaneyslu

Í tilefni Þjóðhátíðar um næstu helgi vill lögreglan minna foreldra og forráðamenn barna á að útivistareglurnar gilda jafnt um Þjóðhátíðina sem aðra daga ársins. Það hefur verið reynsla lögreglunnar að mörg ungmenni byrja að neyta áfengis og annarra vímuefna á Þjóðhátíð og því vill lögreglan hvetja foreldra og forráðamenn til að ræða við börn sín […]
Guðmundur á Núpi greiðir 65.735 milljónir
Guðmundur A. Birgisson, Núpi Ölfusi, greiðir hæstu opinberu gjöldin í umdæmi skattstjórans í Suðurlandsumdæmi, samkvæmt álagningarskrá sem lögð var fram í morgun. Greiðir Guðmundur rúmar 65,7 milljónir króna. Friðrik Guðmundsson, Þorlákshöfn greiðir 58 milljónir króna og Sveinn Samúel Steinarsson, Ölfusi, greiðir 49,2 milljónir króna. (meira…)
Fjarðarbyggð í fyrsta sinn á Hásteinsvöllinn

Í kvöld er enn einn mikilvægi leikur ÍBV á þessu sumri þegar lið Fjarðabyggðar mætir í heimsókn. Fjarðabyggð hefur aldrei áður komið til Eyja og leikið við Eyjamenn svo það verður spennandi að sjá hvernig þeir höndla að mæta í gryfjuna. Eyjamenn sitja í 5. sæti með 22 stig og eru 4 stigum á eftir […]
Ungmenni undir áhrifum áfengis

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í sl. viku og um helgina. Lögreglan þurfti þó að hafa afskipti af gleðskap í heimahúsi um helgina en þar inni voru fjögur ungmenni á aldrinum 15-16 ára undir áhrifum áfengis. Þeim var ekið til síns heima og rætt við foreldra þeirra. (meira…)
Viðræður um samvinnu frekar en sameiningu

Sverrir Albertsson, framkvæmdastjóri AFLS, starfsgreinafélas á Austurlandi, segir það oftúlkun að fyrir dyrum sé sameining AFLS og Drífanda stéttarfélags í Vestmannaeyjum eins og mátti skilja í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi. Vill hann koma eftirfarandi á framfæri: (meira…)