Safnahelgi framlengd

Sýningar úr Ljósmynda- og Kvikmyndasafni Vestmannaeyja í verslunargluggum sem hófust á fimmtudaginn síðasta hafa svo sannarlega slegið í gegn. Og svo mjög að ákveðið er að halda þeim áfram fram yfir næstu helgi. Alla helgina mátti sjá fólk fyrir utan verslanir sem tóku þátt í þessu með söfnunum. Talsverðan tíma tekur að sjá allar myndirnar […]

Leikfimi og sund byrjar aftur, grímskylda afnumin í 5.-7. bekk

Ný reglugerð um takmarkanir á skólahaldi tekur gildi á morgun 18. nóv. Hún felur ekki í sér miklar breytingar frá fyrri reglum, nema að skólaíþróttir verða aftur heimilar og grímuskylda hjá 5.-7. bekk fellur niður. Hins vegar er enn nokkrum spurningum ósvarað og verður þess vegna skólahald með óbreyttum hætti á morgun miðvikudag. Segir í […]

Enginn er í einangrun eða sóttkví í Vestmannaeyjum

Smitum á landinu fer fækkandi og virðist hafa náðst utan um faraldurinn. Þetta er þó ekki búið og geta aðstæður breyst hratt eins og við þekkjum. Okkur hefur gengið vel hér í Vestmannaeyjum og vonum við auðvitað að svo verði áfram þannig að við getum notið aðventunnar og aðdraganda jólanna á sem eðlilegastan hátt. Við […]

Landsbyggðirnar kalla 

Sjö landshlutasamtök á Íslandi hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021. Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og […]

Óbreytt fyrirkomulag heimsókna á Hraunbúðum

Hraunbúðir verða áfram á neyðarstigi almannavarna yfir hjúkrunarheimili. “Við þurfum að halda þetta út öll saman sem eitt lið, við vonumst eftir hinu besta og að allt gangi vel en þurfum að vera undirbúin til að takast á við sýkingar ef þær koma inn. Við munum því halda sama fyrirkomulagi og verið hefur varðandi heimsóknartíma […]

Engir starfsmenn við afgreiðslu í Landeyjahöfn?

Vegna fjár­hags­legr­ar end­ur­skipu­lagn­ing­ar Herjólfs ofh. kem­ur til greina að eng­ir starfs­menn verði leng­ur í af­greiðslu fé­lags­ins við Land­eyja­höfn og Þor­láks­höfn. Ekk­ert hef­ur þó verið ákveðið í þeim efn­um. Þetta seg­ir Guðbjart­ur Ell­ert Jóns­son, fram­kvæmda­stjóri Herjólfs ohf í viðtali á mbl.is. Leita allra leiða Verktaki hef­ur séð um af­greiðsluna við Land­eyja­höfn og Þor­láks­höfn og eru starfs­menn­irn­ir […]

Gonzalo Zamorano til ÍBV

ÍBV hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir átökin í 1. deildinni næsta sumar en Gonzalo Zamorano hefur gert 2ja ára samning við félagið. Gonzalo lék með Víkingi Ólafsvík í sumar og þótti með betri mönnum deildarinnar þar sem hann skoraði hvert markið á fætur öðru. “Velkominn Gonzi og áfram ÍBV,” segir í tilkynningu frá félaginu. (meira…)

Aðgengismál fatlaðs fólks

Aðgengismál fatlaðs fólks og staðan á framkvæmdum í þeim efnum sem stefnt var að í sumar voru til umræðu á fundi Fjölskyldu- og tómstundaráðs í síðustu viku. Í sumar hófst átak í aðgengismálum hjá Vestmannaeyjabæ. Unnið hefur verið í að laga aðgengi m.a. á gatnamótum Höfðavegar/Illugagötu, Kirkjuveg við Vallargötu og Boðaslóð. Átakinu er ekki lokið […]

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er 15. nóvember ár hvert. Dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Kveikt verður á kertum að því tilefni við Kirkjugarðshliðið kl. 19:00 í […]

Að takast á við gremjuna í eigin lífi – ókeypis námskeið hjá Visku

Viska mun miðvikudaginn 18. nóvember klukkan 17:15 bjóða upp á erindi með dr. Bjarna Karlssyni. Erindið fjallar um að takast á við gremjuna í eigin lífi. Erindið er þátttakendum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á netfangið viska@viskave.is eða hringja í síma 4880100. Við skráningu þarf að gefa upp kennitölu og símanúmer […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.