Foreldrar í Vestmannaeyjum borga lægstu gjöldin fyrir skóladagvistun
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám frá árinu 2017 �?? 2018 fyrir skóladagvistun, hressingu og hádegismat í skólunum. Mikill munur er á kostnaði við skóladagvistun og skólamáltíðir hjá sveitarfélögunum en hæst eru gjöldin fyrir skóladagvistun ásamt hádegismat og hressingu hjá Garðabæ eða 37.114 kr. en lægst hjá Vestmanneyjum eða 24.360 kr. Munurinn nemur 12.754 kr. á mánuði sem gera 127.540 kr. á ári miðað við 10 mánaða vistun og er þetta 52% verðmunur.
Verðhækkanir sveitarfélaganna á kostnaði fyrir 1 barn í skóladagvistun með hressingu og hádegismat þetta árið eru á bilnu 1-4,6%. Mesta hækkunin á heildarkostnaði er í Kópavogi en þar er nemur hækkunin 4,6% en Reykjavík kemur í humátt á eftir með 4,5% hækkun og Akraneskaupsstaður með 4,3% hækkun. Gjöldin hækka ekkert milli ára í Hafnafirði, Reykjanesbæ og Vestmanneyjum.
Hæstu gjöldin í Garðabæ, lægstu í Vestmanneyjum
Mikill munur er á milli sveitarfélaganna á heildarkostnaði við skóladagvist barna þar foreldrar eru með börn í frístund, hádegismat og síðdegishressingu. �?annig borgar foreldri í Garðabæ með barn í frístund og hádegismat í skólanum 12.754 krónum meira á mánuði en foreldri í Vestmanneyjum en það gerir 127.540 krónur á ári (miðað við 10 mánaða vistun) og er það munur upp á 52%. Seltjarnarnes er með önnur hæstu gjöldin eða 36.297 kr. og Akureyri með þriðju hæstu gjöldin, 35.721 kr. Eins og fyrr sagði býður Vestmanneyjabær upp á lægstu gjöldin á 24.360 en Reykjanesbær býður upp á næst lægstu gjöldin á 24.565 kr. sem er einungis 205 kr. hærra en gjöld Vestmanneyja. Reykjavík kemur síðan á eftir Reykjanesi með þriðju lægstu gjöldin, 27.279 kr.
40% munur á verði á hádegismat
Hádegismatur hækkar í 11 af 15 sveitarfélögum frá síðasta ári en mesta hækkunin er hjá Reykjavíkurborg þar sem hádegismatur hækkar um 8%, úr 441 kr. í 476 kr. Næstmesta hækkunin á mat er í Mosfellsbæ eða um 5%. Engar verðhækkanir eru á hádegismat í Vestmannaeyjum, Garðabæ og á Reykjanesi. Eftir stendur að hádegismaturinn er dýrastur á Ísafirði á 505 kr. máltíðin. �?ar á eftir kemur Reykjavík með 476 kr. fyrir máltíðina og Garðabær með 474 kr. fyrir máltíðina. �?dýrastur er hádegismaturinn í Sveitarfélaginu Árborg en þar kostar máltíðin 359 kr. og Akranes er með næst ódýrasta hádegismatinn en þar kostar máltíðin 369 kr.
Reykjavík með hæstu systkinaafslættina �?? Fjarðarbyggð með lægstu
Systkinaafslættir er eitt af því sem getur skipt miklu máli fyrir fjölskyldur með fleiri en eitt barn enda getur kostnaður heimilisins við frístund og mat í skóla verið ansi hár. Systkinaafslættir sveitarfélaganna fyrir fólk með fleiri en 1 barn eru þó afar misjafnir. Reykjavík er með hæstu afslættina í heildina litið eða 75% afslátt fyrir annað barn og 100% afslátt fyrir þriðja barn en Fjarðarbyggð er með lægstu afslættina eða 25% fyrir annað barn og 50% fyrir þriðja barn. Í Kópavogi færðu 30% afslátt fyrir annað barn og sama gildir fyrir Ísafjörð. Flest sveitarfélögin eða tíu af fimmtán sveitarfélögum bjóða upp á 50% afslátt fyrir annað barn og átta af fimmtán bjóða upp á 75% afslátt fyrir annað barn. Reykjavík, Akureyri, Seltjarnarnes, Vestmannaeyjar, Sveitarfélagið Skagafjörður og Ísafjarðabær eru allt sveitarfélög með 100% afslætti af gjöldum fyrir þriðja barn.
Einungis er um verðsamanburð að ræða en ekki er lagt mat á gæði þjónustunnar.

Nýjustu fréttir

ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Aðalspaðarnir á tónleikum með Who, Four Seasons, Lulu og Animals
Sigurjón vann einvígið og tryggði sér titilinn
Meinfýsni
Jafnlaunavottun World Class réð úrslitum
Alla Stella keypti gamalt hús og dánarbú fylgdi með
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.