Frábær leikur hjá stelpunum
Kvennalið ÍBV lék sennilega sinn besta leik í vetur þegar liðið lagði Val að velli í annarri viðureign liðanna. Lokatölur urðu 23:17 en staðan í hálfleik var 9:9. ÍBV varð fyrir miklu áfalli eftir að venjulegum leiktíma lauk í fyrri hálfleik en þá fékk Vera Lopes að líta rauða spjaldið, sem þótti mjög vafasamur dómur svo ekki sé fastara að orði komist. �?etta virtist hins vegar hleypa illu blóði í Eyjamenn, bæði liðið og stuðningsmenn því saman tókst þeim að snúa leiknum upp í algjöra niðurlægingu Valsliðsins en ÍBV náði mest 9 marka forystu, 22:13. Staðan er nú jöfn í rimmu liðanna, 1:1 en liðin eigast aftur við í Reykjavík á þriðjudag og svo aftur í Eyjum á fimmtudag.
Fátt markvert hafði gerst í fyrri hálfleik. Liðin skiptust á að skora, ÍBV náði mest tveggja marka forystu en eins og áður sagði var jafnt í hálfleik 9:9. �?egar leiktíminn rann út, fékk ÍBV aukakast og Vera Lopes tók kastið. Vera reyndi augljóslega að skjóta framhjá varnarvegg Vals en ekki vildi betur til en að boltinn hafnaði í andliti eins leikmanns Vals. Skipti þá engum togum að annar dómari leiksins, veifaði rauða spjaldinu upp úr þurru. Í hálfleik skoðuðu forsvarsmenn ÍBV myndband af atvikinu og þar kemur greinilega fram að varnarmaður vals hallaði sér fyrir skotið og rauða spjaldið því í besta falli mjög vafasamt en líklega bara rangur dómur. �?ess má geta að nú hefur Vera Lopes í tvígang fengið að líta rauða spjaldið á stuttum tíma en að eigin sögn hafði hún ekki fengið rautt spjald fyrr en hún kom til Íslands.
En það sem svo gerðist í kjölfarið fer í sögubækurnar. Flestir voru vafalaust búnir að afskrifa ÍBV, enda Vera markahæsti leikmaður ÍBV í vetur. En án hennar stigu aðrir leikmenn upp og öxluðu meiri ábyrgð. Arna �?yrí �?lafsdóttir skoraði mikilvæg mörk, eins og Díana Dögg Magnúsdóttir, sem var færð í skyttustöðuna sem hún leysti frábærlega. Sóley Haraldsdóttir fékk svo það erfiða hlutverk að leysa Veru Lopes af hólmi en hún gerði það vel, skoraði þrjú mörk en þær þrjár eru allar enn í unglingaflokki. �?að var hins vegar ekki að sjá í leiknum enda voru það landsliðsmennirnir í Val sem litu út eins og byrjendur en ekki byrjendurnir í meistaraflokki. ÍBV tók öll völd á vellinum og stelpurnar röðuðu upp mörkunum, auk þess að standa vaktina í vörninni. Til marks um sterkan varnarleik ÍBV, þá skoraði Valur aðeins fjögur mörk á 25 mínútum í seinni hálfleik. �?egar upp var staðið var sigur ÍBV sannfærandi, enda var ÍBV yfir lengst af í leiknum og stakk svo af í seinni hálfleik.
Mörk ÍBV: Arna �?yrí �?lafsdóttir 4, Vera Lopes 4/1, Ester �?skarsdóttir 4, Telma Silva Amado 3, Sóley Haraldsdóttir 3/1, Díana Dögg Magnúsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2.
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 14, �?órsteina Sigurbjörnsdóttir 1.
Meðfylgjandi er viðtal við Ester �?skarsdóttur.

Nýjustu fréttir

Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp
Sundlaugin opnar á ný
ÍBV úr leik eftir tap á Akureyri
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins samþykktur
Fyrirgefðu, móðgaði ég listaverkið þitt?
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.