Í gærkvöldi stóðu ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum, Eyverjar, fyrir kvöldskemmtun í Höllinni. Aðalnúmer kvöldsins var uppistandarinn Ari Eldjárn, sem fór einfaldlega á kostum þannig að tæplega 300 áhorfendur veltust um af hlátri. En auk Ara, komu fram ungir tónlistarmenn í Eyjum, þau Una Þorvaldsdóttir, Sindri Freyr Guðjónsson og Patrick Rittmüller og stóðu sig mjög vel. Ágóði kvöldsins rann óskertur til Krabbavarna Vestmannaeyja.