Einmuna veðurblíða hefur verið í Vestmannaeyjum í dag, sól og blíða og þeir sem hafa haft tækifæri til, hafa nýtt veðrið til útivistar. Óskar Pétur Friðriksson, ljósmyndari, brá undir sig betri fætinum og fór í fjallgöngu upp að Blátindi. Í fjallshlíðinni var nóg af lunda og hitti Óskar auk þess á lundaveiðimenn við iðju sína. Hægt er að sjá þessar frábæru náttúrumyndir hér að neðan.