Fraktskipið Longdawn sem lenti í árekstri við strandveiðibátinn Höddu úti fyrir Garðskaga í fyrrinótt sigldi frá Eyjum á fjórða tímanum í dag. Skipið heldur leið sinni áfram til Rotterdam.
Krafist er farbanns yfir skipstjóra skipsins og stýrimanni. Héraðsdómur Reykjaness er með farbannskröfu á skipstjóra og þann stýrimann sem var á vakt til meðferðar.
Óskar Pétur Friðriksson smellti mynd af flutningaskipinu þegar Lóðsinn aðstoðaði það við að snúa í Vestmannaeyjahöfn í dag.
https://eyjar.net/thrir-skipverjar-i-haldi-logreglu/
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst