Í kvöld klukkan 20:00, mun Framsóknarflokkurinn halda fund á veitingastaðnum Einsi Kaldi á Hótel Vestmannaeyjum. Á fundinum verður varaformaður flokksins og efsti maður á lista í Suðurkjördæmi, Sigurður Ingi Jóhannsson, Páll Jóhann Pálsson, þriðji maður á lista í Suðurkjördæmi og Eyjamaðurinn Jónatan Guðni Jónsson sem situr í áttunda sæti á lista Framsóknar.