Frestur til að sækja í uppbyggingarsjóð rennur út í dag

Frestur til að sækja um í Uppbyggingarsjóður Suðurlands rennur út í dag klukkan 16:00. Styrkveitingar skiptast í tvo flokka, annars vegar atvinnu og nýsköpun og hins vegar menningu. Í flokki  atvinnu og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024 sem tók gildi um síðustu áramót. Umsækjendum er því bent á að kynna sér markmið og nýjar áherslur sjóðsins sem má finna hér.

Í upphafi er mikilvægt að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins og mat á umsóknum sem eru aðgengelgar hér.

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einkaaðgangi verkefnastjóra. Ef umsóknin uppfyllir ekki þessi skilyrði, má búast við að hún verði ekki tekin til yfirferðar.

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, eða bóka tíma í ráðgjöf hér

 

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.