Fundur bæjarstjórnar í beinni
_DSC0045
Frá fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Í dag klukkan 14:00, fer 1624. fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyjar fram í Ráðhúsinu og verður fundinum streymt í beinni útsendingu.

Á dagskrá fundarins eru meðal annars ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025, sem tekinn verður til fyrri umræðu, auk umræðu um samgöngumál í Eyjum. Þá verður einnig fjallað um menningarstefnu Vestmannaeyjabæjar, sem lögð er fram til fyrri umræðu, og kosið í ráð, nefndir og stjórnir samkvæmt bæjarmálasamþykkt bæjarins. Einnig liggja fyrir fundargerðir ráða og nefnda, þar á meðal tillaga að reglum um smáhýsi, skúra og garðveggi sem lögð er fram til staðfestingar.

Dagskrá:

Almenn erindi

1. 202603001 – Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2025
-Fyrri umræða-

2. 201212068 – Umræða um samgöngumál

3. 202403126 – Menningarstefna Vestmannaeyjabæjar
-Fyrri umræða-

4. 201006074 – Kosning í ráð, nefndir og stjórnir skv. 42. gr. bæjarmálasamþykktar Vestmannaeyjabæjar.

Fundargerðir

5. 202603001F – Bæjarráð Vestmannaeyja – 3255
Liður 5.1 liggur fyrir til upplýsinga.

6. 202602015F – Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja – 436
Liður 6.2, Reglur um smáhýsi, skúra og garðveggi, liggur fyrir til staðfestingar.
6.2 202505090 – Reglur um smáhýsi, skúra og garðveggi

7. 202602013F – Framkvæmda- og hafnarráð Vestmannaeyja – 332
Liðir 7.1-7.9 liggja fyrir til upplýsinga.

Nýjustu fréttir

Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 781 milljón 
Vel heppnaðri loðnuvertíð að ljúka
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla á Hraunbúðum og sjúkrahúsi
Fundur bæjarstjórnar í beinni
Bríet Björk, Caritas Rós og Kolbrá bestar
Ykkar er valið
Niðurstöður prófa – Vestmannaeyjar í einstakri stöðu
Að alast upp í Vestmannaeyjum 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.