Samstarf ÍBV og KFR er að taka á sig meiri og meiri mynd. Fyrstu sameiginlegu æfingarnar fóru fram í gær og í dag. 3.flokkur karla og kvenna, Rangárhverfið og Eyjahverfið æfðu saman. Stúlkurnar mættu til Eyja í gær og náðu að taka eina æfingu. Þá æfði Rangárhópurinn einnig snemma í morgun áður en haldið var heim. Strákarnir mættu til Eyja í morgun og æfðu í hádeginu. Æfingarnar tókust vel enda æft við bestu aðstæður.