VM 4 á land í Eyjum í gærkvöldi
Lagningarskipið Aura kom að landi í Vestmannaeyjum í gær.

„Það hefur gengið mjög vel, veðrið hefur verið okkur hliðhollt, frábært fólk að vinna að verkefninu og það er gaman að segja frá því að Vestmanneyjastrengur 4 kom í land í gærkvöldi í ljósadýrðinni af flugeldaveislunni á Goslokahátíðinni. Það lofar örugglega góðu um framhaldið en nú er verið að undirbúa lagningu Vestmannaeyjastrengs 5 og stefnum við á að byrja á honum í nótt ef allt gengur að óskum,“ Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi Landsnets við Eyjafréttir í morgun.

Lagning tveggja nýrra rafstrengja frá Landeyjahöfn til Vestmannaeyja hófst á föstudaginn. Verkið er unnið af norska fyrirtækinu Seaworks, sem sérhæfir sig í lagningu neðansjávarrafstrengja. Við það eykst flutningsgeta um 120 MVA. Verklok áætluð um miðjan júlí.

Tilgangurinn er að bæta afhendingaröryggi raforku til Vestmannaeyja og tryggja örugga orkutengingu til framtíðar. Núverandi strengur hefur verið í notkun í 12 ár og hefur bilað tvisvar.

Myndir: Óskar Pétur.

ÓPF

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.