Goslok – Mörg þúsund gestir og eitthvað fyrir alla
Wipebræður voru í aðalhlutverki á fjölskylduskemmtun Ísfélagsins. Myndir Óskar Pétur.

Goslokahátíð sem staðið hefur alla vikuna. Dagskráin hefur verið mjög fjölbreytt og að venju var mest um að vera á laugardeginum.

Einn af hápunktunum var sund Héðins Karls Magnússonar og Pétur Eyjólfssonar sem syntu frá Elliðaey og tóku land  við Tangann. Syntu þeir í minningu Margrétar Þorsteinsdóttur og til styrktar góðgerðasamtökunum Ljónshjarta, sem styðja við börn og fjölskyldur sem glíma við erfið veikindi.  Góð þátttaka var í goslokalitahlaupi Ísfélagsins og þúsundir voru mætt eftir hádegið þar sem Ísfélagið bauð upp á fjölskylduskemmtun. Þar voru Wipebræður í aðalhlutverki ásamt Íþóttaálfinum.

Helga og Arnór buðu til listaveislu á heimili sínu við Vestmannabrautina og þangað mætti fjöldi manns. Trúbadorinn Aron Daði Hauksson  og Einar Ágúst skemmtu í Bárugötunni og lokatónn dagsins var sleginn á Vigtartorgi þar sem sem þúsundir skemmtu sér fram á nótt.

 

Fjöldi fólks hefur notið veðurblíðunnar á

 

 

 

 

 

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru hluti af Suðurkjördæmi alla daga ársins“
Locomotive Breath flutt til heiðurs Jóa Listó
Áhyggjur af fjölda barna sem bíða eftir greiningu
Metmæting á kótilettukvöldi í Höllinni
Aron Lucas Vokes með slitið krossband
Agnar Smári Jónsson með stórsýningu er hann sneri aftur á völlinn í Eyjum í dag
Sandra tryggði ÍBV sigur í blálokin gegn Fram
Bleikur leikur hjá Eyjakonum – allur aðgangseyrir til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.