Vel heppnuð og fjölmenn Goslokahátíð

 Goslokin þetta árið heppnuðust vel á allan hátt. Fjölbreytt dagskrá, gott veður og þúsundir gesta lögðust sitt að mörkum til að gera hátíðina sem besta. Í gær var síðasti dagur hátíðarinnar. Hófst dagskráin með Göngumessu frá Landakirkju að krossinum í gíg Eldfells. Þar flutti séra Viðar Stefánsson hugvekju. Þaðan var gengið á Skansinn þar sem boðið var upp á súpu og brauð að hætti Einsa kalda.

Eftir hádegið flutti Guðrún Erlingsdóttir fyrirlesturinn, Konur og gosnóttin í Sagnheimum og var aðsókn góð. Erindið byggir hún upp á viðtölum við konur af upplifun þeirra gosnóttina og fer lítillega yfir afleiðingarnar. Að erindi loknu gafst gestum í sal kostur á að tjá sig um upplifun þeirra af gosnóttinni. Guðrún hefur safnað frásögnum af upplifun, lífi og líðan íbúa vegna eldgossins 1973 síðastliðin sjö ár. Hún segir nauðsynlegt að safna eins mikið af sögum um hægt á meðan þeir sem upplifðu gosið eru enn til frásagnar.

Þetta myndaði Óskar Pétur en hann leit líka við hjá Villa á Bustó sem sýndi málverk heima hjá sér á Vestmannabrautinni. Líka á sýning Helgu og Páls í sal Tónlistarskólans.

 

 

 

 

 

Fjölmennnt var hjá Guðrúnu í Sagnheimum.

Vilhjálmur og Ragnhildur ánægð með sýninguna.

Helga og Páll sýndu í sal Tónlistarskólans.

Nýjustu fréttir

Úti er ævintýri
Áhyggjur af útbreiðslu lúpínu og kerfils
Baldur áfram varaskip Herjólfs vegna tafa á viðgerð
Alexandra Ósk, Ásdís Halla og Birna María eru mættar til Kína með u-20 ára landsliðinu
Laxey sækir 6,7 milljarða í nýtt hlutafé
Myndband frá Haugasvæðinu: Vinnan komin á fullt
Eyjakonur töpuðu heima gegn Breiðablik
Þétt setinn skóli þegar haustönn hefst
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.