Handverkshópur kvenna sem hefur saman rekið
Gallerí Tyrkja-Guddu undanfarin ár hefur nú flutt starfsemina á Kirkjuveg 12, þar sem Gallerí Prýði var áður. �?að hefur verið nokkurt flakk á Gallerí Tyrkja-Guddu undanfarin ár sem fyrst var til húsa í Pippkrónni sumarið 2011. �?aðan flutti galleríið á Vestmannabraut, í gamla apótekið. Í febrúarbyrjun á þessu ári flutti galleríið á Heiðarveg 9, þar sem bókabúð var eitt sinn til húsa. �?angað hefur verslunin Volare flutt þar sem Vínbúðin mun flytja á Vesturveg, þar sem Volare hefur verið undanfarin ár. Handverkskonur í Gallerí Tyrkja-Guddu geta nú andað rólega því gerður hefur verið þriggja ára leigusamningur við Víði og Ívar Róbertssyni um Prýðishúsið á Kirkjuvegi.
Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, ein af handverkskonunum að baki Gallerí Tyrkja-Guddu, segir í samtali við Eyjafréttir að hópurinn samanstandi af ólíkum einstaklingum en konurnar eru á aldrinum 28 til 76 ára. Allar framleiða þær undir eigin merkjum og vörurnar eru mjög fjölbreyttar. Dæmi um eigin framleiðslu sem er til sölu í Gallerí Tyrkja-Guddu eru hattar, húfur, vettlingar, töskur, lundabuddur, kerti, glervörur, heklaðir hárkambar, lopapeysur, ýmsar prjónavörur og skartgripir sem eru framleiddir úr steinum sem er safnað í Vestmannaeyjum.
Hráefnið er af ýmsum toga, meðal annars skinn, roð, leður og þæfð ull. �?á er einnig boðið upp á prentun og fást myndir prentaðar á platta, kerti, könnur, púsl og lyklakippur. Til að ramma inn jólastemmninguna fást piparkökuhús og -skreytingar einnig í Gallerí Tyrkja-Guddu á Kirkjuvegi 12. Jóhanna Lilja minnir á að það verður veittur 20% afsláttur af öllum vörum í galleríinu frá fimmtudegi til sunnudags.