Myndir frá föndurdegi

Í dag var föndrað í grunn- og leikskólum bæjarins. Myndirnar með fréttinni eru af Facebook síðu Grunnskóla Vestmannaeyja, þar kemur fram að þátttaka aðstandenda aukist með hverju árinu. Föndurdagurinn setur skemmtilegan blæ á skólastarfið. Eflaust hafa margir þegið stutt frí frá önnum dagsins og náð að slaka á með börnum sínum við föndur og jólatónlist […]

Gallerí Prýði hýsir Tyrkja-Guddu

Handverkshópur kvenna sem hefur saman rekið Gallerí Tyrkja-Guddu undanfarin ár hefur nú flutt starfsemina á Kirkjuveg 12, þar sem Gallerí Prýði var áður. �?að hefur verið nokkurt flakk á Gallerí Tyrkja-Guddu undanfarin ár sem fyrst var til húsa í Pippkrónni sumarið 2011. �?aðan flutti galleríið á Vestmannabraut, í gamla apótekið. Í febrúarbyrjun á þessu ári […]

Styrkur til tómstunda og íþrótta er réttlætismál

�?hætt er að segja að óánægja ríki meðal foreldra í Vestmannaeyjum eftir að meirihluti bæjarstjórnar hafnaði tillögu minnihlutans um að tekin yrðu upp svokölluð frístundakort til niðurgreiðslu á íþrótta- og tómstundaiðkun barna. Eyjalistinn lagði til að 16 milljónir króna yrði settar í verkefnið svo foreldrar gætu sótt um 25.000 króna niðurgreiðslu fyrir börn sín, hvort […]

Myndband: Bikarævintýri ÍBV-sveinanna

Karlalið ÍBV komst áfram í 8-liða úrslit Coca Cola bikarkeppninnar í handknattleik með sigri á ÍR í gærkvöld 31-22. Í tilefni þess að fyrsti jólasveinninn kemur til byggða í kvöld, Stekkjastaur, ákvað Sighvatur Jónsson að stríða Gunnari Magnússyni, þjálfara ÍBV, í viðtali fyrir R�?V eftir leik. Hann sneri nöfnum nokkurra íslenskra jólasveina yfir á handboltalið […]

Dagur jólapeysunnar á morgun

Stjórnendur GRV eru meðal þeirra sem taka þátt í jólapeysunni, áheitasöfnun Barnaheilla. Í kjölfar umræðu um dag jólapeysunnar á morgun, föstudaginn 12. desember, hafa þeir sent eftirfarandi orðsendingu til foreldra. �?essi dagur er haldinn á landsvísu af Barnaheill og tilgangurinn með honum sá að einstaklingar og fyrirtæki geta safnað áheitum, öll áheit sem safnast eru […]

Rauði Krossinn �?? Engin sýning á sunnudaginn

�?að er rangt sem kemur fram í Eyjafréttum að sýning í tilefni af 90 ára afmæli Rauða krossins verði í Arnardrangi á sunnudaginn. Hið rétta er að opið hús var í Arnardrangi í gær, 10. desember sem er afmælisdagur RKÍ. Mistökin eru blaðamanns og er beðist velvirðingar á þeim. (meira…)

Hver er það sem gætir barna þinna í frístundum?

Hver er það sem gætir barna þinna í frístundum? Frístundir barna hafa aukist mikið á síðustu árum. �?� Meðalmannskja sem lifir í 70 ár eyðir 27 árum í frítíma 24 árum í svefn 7,33 árum í vinnu 4,33 í formlega menntun 2,33 í að borða (Rannsókn Weiskopf frá 1982) �?að þarf engan sérfræðing til að […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.