Myndband: Bikarævintýri ÍBV-sveinanna
Karlalið ÍBV komst áfram í 8-liða úrslit Coca Cola bikarkeppninnar í handknattleik með sigri á ÍR í gærkvöld 31-22. Í tilefni þess að fyrsti jólasveinninn kemur til byggða í kvöld, Stekkjastaur, ákvað Sighvatur Jónsson að stríða Gunnari Magnússyni, þjálfara ÍBV, í viðtali fyrir R�?V eftir leik. Hann sneri nöfnum nokkurra íslenskra jólasveina yfir á handboltalið ÍBV en Gunnar lét ekkert koma sér á óvart og tók þátt í gríninu.
Í meðfylgjandi myndbandi SIGVA media má sjá viðtalið ásamt nokkrum vel völdum skotum úr leiknum í gær þar sem lið ÍBV fór á kostum. Margir vorkenna eflaust Agnari Smára Jónssyni undir lok myndbandsins en hann ku hafa náð sér eftir að hafa fengið högg mjög neðarlega �??á kviðinn�??.
Í framhaldi þessa jólagríns hafa nöfn allra jólasveinanna verið útfærð á ÍBV hátt. Í sumum nöfnunum felast einkunnarorð ÍBV: heilbrigði, samvinna, barátta og gleði.
ÍBV-sveinarnir
1. Sóknarstaur
2. Baráttugaur
3. Húfur
4. Bikarsleikir
5. Stemmningsskefill
6. Boltasleikir
7. Gleðiskellir
8. Heilbrigðisgámur
9. Titlakrækir
10. Varnargægir
11. Samvinnuþefur
12. Markakrókur
13. Sigursníkir
Sjáðu samskonar myndband frá bikarleik b-liðsins gegn �?rótti föstudaginn 12. desember.

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.