Gallerí Prýði hýsir Tyrkja-Guddu
Handverkshópur kvenna sem hefur saman rekið Gallerí Tyrkja-Guddu undanfarin ár hefur nú flutt starfsemina á Kirkjuveg 12, þar sem Gallerí Prýði var áður. �?að hefur verið nokkurt flakk á Gallerí Tyrkja-Guddu undanfarin ár sem fyrst var til húsa í Pippkrónni sumarið 2011. �?aðan flutti galleríið á Vestmannabraut, í gamla apótekið. Í febrúarbyrjun á þessu ári flutti galleríið á Heiðarveg 9, þar sem bókabúð var eitt sinn til húsa. �?angað hefur verslunin Volare flutt þar sem Vínbúðin mun flytja á Vesturveg, þar sem Volare hefur verið undanfarin ár. Handverkskonur í Gallerí Tyrkja-Guddu geta nú andað rólega því gerður hefur verið þriggja ára leigusamningur við Víði og Ívar Róbertssyni um Prýðishúsið á Kirkjuvegi.
Jóhanna Lilja Eiríksdóttir, ein af handverkskonunum að baki Gallerí Tyrkja-Guddu, segir í samtali við Eyjafréttir að hópurinn samanstandi af ólíkum einstaklingum en konurnar eru á aldrinum 28 til 76 ára. Allar framleiða þær undir eigin merkjum og vörurnar eru mjög fjölbreyttar. Dæmi um eigin framleiðslu sem er til sölu í Gallerí Tyrkja-Guddu eru hattar, húfur, vettlingar, töskur, lundabuddur, kerti, glervörur, heklaðir hárkambar, lopapeysur, ýmsar prjónavörur og skartgripir sem eru framleiddir úr steinum sem er safnað í Vestmannaeyjum.
Hráefnið er af ýmsum toga, meðal annars skinn, roð, leður og þæfð ull. �?á er einnig boðið upp á prentun og fást myndir prentaðar á platta, kerti, könnur, púsl og lyklakippur. Til að ramma inn jólastemmninguna fást piparkökuhús og -skreytingar einnig í Gallerí Tyrkja-Guddu á Kirkjuvegi 12. Jóhanna Lilja minnir á að það verður veittur 20% afsláttur af öllum vörum í galleríinu frá fimmtudegi til sunnudags.

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.