Á fundi Fræðslu- og menningarráðs í gær var tekin fyrir ályktun stýrihóps vegna útboðs á rekstri leikskólans Sóla. „Eftir að hafa metið tilboðin sem bárust hefur stýrihópur komist að eftirfarandi niðurstöðu: Af þeim þremur tilboðum sem bárust vegna útboðs rekstrar leikskólans Sóla voru tvö sem uppfylltu öll skilyrði sem sett voru í útboðsforsendum. Stýrihópurinn mælir með að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda sem er Hjallastefnan ehf,“ segir í ályktun stýrihópsins.