Gerum betur
Skólamál grunnskólans er mikilvægur málaflokkur sem Vestmannaeyjabær ber ábyrgð á. Fyrir skömmu var framboðsfundur í Akóges þar sem framboðin fengu fyrirspurn um hvort við hefðum einhvern metnað í skólamálum grunnskólans. �?g var ein þeirra sem svaraði en eitthvað virðist hafa verið snúið út úr orðum mínum í umræðunni.
Fulltrúi E-listans sem talaði á undan mér taldi húsnæðið hamla skólastarfi. �?g lýsti þeirri skoðun minni að þar væri ég ekki sammála, vissulega þyrftum við sífellt að leita lausna í húsnæðismálum vegna breytinga á stærð árganga en við sætum nú einu sinni í sömu húsnæðum og árið 1992 þegar 830 börn voru í skólanum en þau eru nú 560 talsins. Auðvitað verður húsnæðið að vera boðlegt en nú tel ég að við verðum að beina sjónum okkar að innra starfi skólans.
�?að er ekki fullnægjandi að mælast neðst á samræmdum prófum, sama hvaða nafni þau nefnast og ég mun aldrei samþykkja það sem góðan árangur sem við eigum að sætta okkur við. �?að er líka þyngra en tárum taki að horfa upp á slíka umfjöllun um skólann okkar í fjölmiðlum. Við vitum að í skólanum fer fram frábært starf sem er ekki allt mælanlegt á samræmdum prófum. Engu að síður er ég sannfærð um að við getum gert betur og náð meiri árangri.
Við erum með öflugt og metnaðarfullt starfsfólk sem vill sífellt gera betur. Kennarar eru jafn óánægðir með að við skulum ekki mælast hærra á samræmdum prófum og við hin. �?að er hlutverk bæjarfulltrúa að móta stefnuna fyrir næstu fjögur árin og það er mín skoðun að við verðum að leggja alla áherslu á innra starfið. �?g vil að við gerum betur, náum betri árangri og ég tel okkur vel geta það. �?ar liggur minn metnaður fyrir grunnskólann.
Páley Borgþórsdóttir,
skipar 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.