ÍBV og �?róttur mættust í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla í kvöld þar sem ÍBV sigraði 2-0 og eru því komnir í 8-liða úrslit í bikarnum en fyrir leikinn voru �?róttarar taplausir. ÍBV voru mun betri í fyrri hálfleik, pressuðu vel og á 15. mínútu var hreint ótrúlegt að ÍBV hefði ekki komist í forustu þegar Bjarni var í þrígang í algjöru dauðafæri en varnarmenn �?róttar köstuðu sér alls þrisvar fyrir skot hans, en boltinn barst svo út fyrir teiginn þar sem Mees Siers átti skot fram hjá. Á 35. mínútu komst svo ÍBV yfir þegar Jonathan Glenn renndi sér í boltann og kom honum í netið eftir að Tom Evan Skogrud vann boltann á vinstri kantinum og sendi fyrir. Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir ÍBV.
Aðeins rólegra var yfir síðari hálfleik til að byrja með, �?róttarar gerðu svo þrefalda skiptingu en þremur mínútum eftir skiptinguna kom Víðir �?orvarðarson ÍBV í 2-0. Víðir fékk sendingu frá Aroni Bjarnasyni og skoraði með frábæru skoti af vítateigslínunni. Eftir þetta pressuðu �?róttarar meira en ekkert gekk og lokatölur 2-0.
Dregið verður í hádeginu á morgun í 8-liða úrslitunum og munu leikirnir fara fram um Goslokahelgina og munu Eyjamenn eflaust krossa fingur um að fá heimaleik.