Áhöfnin á Drangavík VE færði Sæheimum góða gjöf er þeir komu að landi í morgun. Um var að ræða fjölda gaddakrabba, humra, tröllakrabba og kolkrabba.Peyjarnir á �?órunni Sveinsdóttir færðu okkur einnig kolkrabba fyrir skömmu og eru dýrin nú öll komin í ný heimkynni á safninu. �?að er nauðsynlegt fyrir safnið að fá gjafir frá sjómönnum og erum við mjög þakklát þegar þeir hafa okkur í huga og koma færandi hendi.