Á fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs í síðustu viku voru lagðar fram tillögur um breytingar á rekstrarþáttum á Hraunbúðum. Í fundargerð segir að rekstrarkostnaður hafi undanfarin ár verið hærri en nemur framlagi ríkisins. Hefur það sem upp á vantar verið greitt af bæjarsjóði. Nú á að grípa til hagræðingar og á m.a. að leita tilboða í ræstingu.
Í fundargerðinni er greint frá því að stöðugt sé verið að skoða leiðir til að bæta rekstur Hraunbúða ásamt því að hagræða þannig að fjármagn nýtist sem best til þjónustunnar. Eftir vandaða yfirferð á rekstri málaflokksins og samanburð á rekstri annarra sveitarfélaga á sama málaflokki var lagt til að leitað verði tilboða í ræstingu á Hraunbúðum. Vestmannaeyjabær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum reynist þau ekki hagstæðari en núverandi fyrirkomulag.
Líka verði óskað tilboða í þá þjónustu sem veitt er í beinni og eða óbeinni samkeppni við einkaaðila. Núverandi verktakasamningum vegna fót- og hársnyrtingar verði því sagt upp og auglýst eftir rekstraraðilum með útboði. �?tboðsforsendur verða leiguverð og hagstætt verð, afsláttur, til þjónustuþega. Heimilismenn greiða sjálfir fyrir þjónustuna. Vestmannaeyjabær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum ef þau eru ekki ásættanleg.
Einnig að könnuð verði hagkvæmni þess að bjóða út fleiri þætti í rekstri Hraunbúða s.s. starfsemi eldhúss og heimsendingu matar. �??Allur ávinningur af hagræðingu verði nýttur áfram í þjónustu við aldraða s.s. við eflingu dagvistunar á Hraunbúðum og í starfsemi aldraðra í Kviku,�?? segir í fundargerð og samþykkti ráðið tillögurnar.