Útvarpsstöðin Gufan fer aftur í loftið fyrir Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Gufan var endurvakin í fyrra í tilefni þess að þá voru 20 ár liðin frá því að stöðin var fyrst starfrækt. Leikurinn verður endurtekinn nú og hefjast útsendingar með formlegum hætti í fyrramálið, föstudaginn 23. júlí, klukkan 9 og standa yfir hátíðina. Gufan hitar upp fyrir þjóðhátíð með tónlist, fréttum og spjalli um allt sem viðkemur hátíðinni.