Hópurinn Gyllta flóran frá Féló kom sá og sigraði aðalkeppni hönnunarkeppninnar Stíls á vegum Samfés sem fram fór í Kópavogi í gær. Fulltrúar félagsmiðstöðva víðs vegar af landinu tóku þátt og bar hópurinn frá Eyjum sigur úr bítum.
Það voru þær Júlí Arna Sigurjónsdóttir, Elísabet Inga Þórisdóttir og Aþena Rós Einarsdóttir sem unnu keppnina með glæsibrag. Þema keppninnar var „Á tímum Viktoríu“, þar sem sóttur var innblástur í tískustíl Viktoríutímabilsins og hönnuðu nemendur heildarútlit sem samanstóð af fatnaði, hári og förðun.
Eyjafréttir óskar hópnum innilega til hamingju!
Hægt er að sjá keppnina í heild sinni hér fyrir neðan.