Hafrannsóknastofnun ráðleggur engar loðnuveiðar
Niðurstaða úr loðnuleiðangri Hafrannsóknarstofnunar liggur nú fyrir og benda hún til þess að árgangur 2015 sé mjög lítill. Fullorðin loðna fannst víða í köntum og á landgrunni við Austur Grænland, í Grænlandssundi að landgrunnsbrúninni út af Vestfjörðum, en engin loðna fannst með landgrunnsbrún norðan Íslands. Lóðningar voru einnig yfirleitt mjög gisnar og einungis mældust 137 þúsund tonn af kynþroska loðnu.
Mælingar á ungloðnu haustið 2015 bentu til þess að veiðistofninn á komandi vertíð yrði lítill og í samræmi við samþykkta aflareglu var ákveðið að engar veiðar yrðu stundaðar nema mælingar haustsins 2016 gæfu tilefni til endurskoðunar. Mælingar undanfarinna vikna á stærð loðnustofnsins staðfesta þær vísbendingar.
Gildandi aflaregla byggir á því að skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygningar í mars 2017 með 95% líkum. Tekur aflareglan tillit til óvissumats útreikninganna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk afrán þorsks, ýsu og ufsa á loðnu.
Í samræmi við ofangreinda aflareglu ráðleggur Hafrannsóknastofnun að engar loðnuveiðar verði stundaðar á vertíðinni 2016/2017. Hafrannsóknastofnun mun að vanda mæla veiðistofn loðnu að nýju í janúar/febrúar 2017 og í ljósi þeirra mælinga endurskoða ráðgjöfina.

Nýjustu fréttir

Myndband frá höfninni: Steðji VE landar
Að loknu prófkjöri
Bærinn eignfærir lögfræðikostnað  
ÍBV tapaði gegn Haukum
Bæjarráð hafnar bótakröfu vegna gatnagerðar við Alþýðuhús
Laxey rís í Vestmannaeyjum
Arnór bestur í tapi Karlskrona
Rangur loki tafði prófanir á sundlaugarkerfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.