Hagamýs nema land í Vestmannaeyjum
21. nóvember, 2022

Hagamús hefur nýverið numið land í Vestmannaeyjum. Fram til þessa höfðu þar einungis verið húsamýs. Hagamús er algeng og útbreidd nagdýrategund sem að öllum líkindum kom til Íslands með landnámsmönnum á 10. öld og hefur verið hér síðan.

Þetta kemur fram á vef Náttúrustofnunar Íslands þar sem segir að þrjár aðrar nagdýrategundir lifi á Íslandi, húsamýs sem einnig komu til landsins með landnámsmönnum, brúnrottur komu til landsins á 18. öld og svartrottur í upphafi 20. aldar.

„Svartrotta lifir í Vestmannaeyjum en þar finnast hinsvegar ekki brúnrottur. Húsamús og báðar rottutegundirnar finnast nær eingöngu í eða við athafna- og búsvæði mannsins en hagamúsin finnst í gróðurlandi um allt land, utan athafnasvæði manna. Á þessu er ein merkileg undantekning því húsamýs lifa utandyra í náttúrulegu umhverfi í Vestmannaeyjum, þar sem aldrei hafa verið hagamýs svo vitað sé – fram til þessa.

Haustið 2022 bárust Náttúrufræðistofnun Íslands myndir af músum sem veiddust í heimahúsi í Vestmannaeyjum. Á myndunum sjást bæði húsamýs og hagamýs. Þetta þótti til tíðinda enda hefur það verið alkunna að í Vestmannaeyjum séu eingöngu húsamýs en engar hagamýs. Þegar fréttir bárust síðan af meintri hagamús sem veidd var í heimahúsi í Heimaey þann 26. október síðastliðinn óskaði Náttúrufræðistofnun Íslands eftir því að fá hræið  til greiningar. Í ljós kom að um fullorðna karlkyns hagamús var að ræða og er hún nú varðveitt á vísindasafni stofnunarinnar.

Samkvæmt upplýsingum frá Ásmundi Ásmundssyni meindýraeyði í Vestmannaeyjum, sem heldur skrá yfir veidd nagdýr í Heimaey, veiddist fyrsta hagamúsin árið 2020 á suðurhluta eyjarinnar. Hagamús hefur þó líklega veiðst árið 2019 án þess að hún hafi verið greind til tegundar. Eftir þetta hafa hagamýs veiðst í jaðri nýja hraunsins á austurhluta eyjarinnar og í Herjólfsdal vestanmegin byggðarinnar. Ásmundur telur að hagamýs séu nú útbreiddar um alla Heimaey.

Þar sem húsamýs hafa lifað í náttúru Vestmannaeyja frá landnámi og aðlagast umhverfinu þar án samkeppni við hagamús í um þúsund ár má segja að komið sé upp einstakt tækifæri til að fylgjast með tegundunum tveimur og samkeppni þeirra á milli, sérstaklega hvort önnur tegundin muni hopa og hin taka yfir,“ segir á vef NÍ – ni.is

Mynd – NÍ.

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
14. tbl. 2024
14. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst