Hallgrímur Júlíusson varð annar í Íslandsmótinu í höggleik unglinga sem fór fram á golfvellinum í Vestmannaeyjum um helgina. Hallgrímur varð aðeins tveimur höggum á eftir Bjarka Péturssyni, GB sem varð Íslandsmeistari í flokki 15-16 ára en keppni þeirra tveggja var æsispennandi. Þannig voru þeir jafnir í efsta sæti fyrir síðasta daginn en að lokum hafði Bjarki betur. Úrslit mótsins má sjá hér að neðan.