Í kvöld klukkan 19:00 mætast Haukar og ÍBV í CokaCola bikar kvenna á Ásvöllum. Þessi lið enduðu í 3. og 4. sæti á síðasta tímabili. Bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar í vetur enda gengu þau bæði í gegnum mikilar breytingar á milli tímabila. Liðin eru í dag jöfn með 5 stig í 6. og 7. sæti og hafa mæst einu sinni í vetur en þá fóru Haukastelpur með sigur af hólmi í Vestmannaeyjum 18-21. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2.
Við hvetjum alla til að mæta á Ásvelli í kvöld og styðja stelpurnar.




















Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst
Ekki liggja fyrir nýjar mælingar
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.