Loðnuleit fer að hefjast á ný, en lítið fannst af loðnu í síðustu leit seinni hluta janúar-mánuðar. Þó voru vísbendingar um að loðnan héldi sig að miklu leiti undir hafís norðvestur af landinu.
Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins staðfestir í samtali við Eyjar.net að Heimaey VE fari til loðnuleitar eftir helgi, en hún verður á vestursvæðinu.
Fram kom eftir síðasta leiðangur í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar að mesti þéttleiki fullorðinnar loðnu hafi verið í námunda við hafísröndina á svæðinu út af Horni og austur að Kolbeinseyjarhrygg. Vestan við það svæði var aðallega að finna ókynþroska loðnu. Miðað við þessa dreifingu má ætla að ís hafi komið í veg fyrir að náðst hafi að dekka allt útbreiðslusvæði loðnunnar. Það magn sem mældist nú af fullorðinni loðnu er aðeins um fjórðungur þess sem mældist í haust.
Uppfært kl.17.30
Í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun segir að haldið verði aftur af stað til loðnumælinga nk. mánudag, 5. febrúar en síðustu loðnumælingaleit lauk þann 23. janúar sl. Fyrirhugað var að rannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 200 færi til mælinga ásamt veiðiskipunum Ásgrími Halldórsyni og Polar Ammassak. Við botnskoðun á Árna í slipp í Hafnarfirði nú í vikunni kom hins vegar fram olíuleki með driföxli sem gera þarf við, m.a. til að koma í veg fyrir mengun, og getur hann því ekki tekið þátt í verkefninu.
Við þessari stöðu var brugðist á skjótan hátt af útgerðaraðilum því nú er verið að gera loðnuskipið Heimaey VE klárt í verkefnið í stað Árna en Heimaey hafði verið á kolmunaveiðum.
Útgerðir uppsjávarveiðiskipa munu bera kostnað af tveimur skipum og Hafrannsóknastofnun af einu. Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar verða um borð í öllum skipunum og stjórna mælingunum.
Fyrirhugað rannsóknarsvæði nær frá Víkurál út af Vestfjörðum og þaðan til austurs að Héraðsdjúpi út af Austfjörðum en yfirferðina mun þurfa að aðlaga að útbreiðslu loðnunnar og aðgengi að hafsvæðum t.d. vegna hafíss, segir í tilkynningunni.
https://eyjar.net/leidangurinn-breytir-ekki-radgjof/
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst