Innilauginni lokað vegna viðhalds
Sundlaug Opf 20250320 203232
Sundlaugin í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Vegna endunýjunar á hreinsikerfi sundlaugarinnar verður innilaugin lokuð frá og með 20. október. Á meðan á lokuninni stendur verður einnig farið í viðgerðir á yfirfallsrennum og kanti sundlaugarinnar. Þetta segir í tilkynningu sem birt er á heimasíðu bæjaryfirvalda.

Þar segir jafnframt að reiknað sé með að framkvæmdir taki um sex vikur og er stefnt að því að opna innilaugina aftur í byrjun desember.

„Útisvæðið verður opið á meðan framkvæmdum stendur, og hvetjum við gesti til að nýta sér það. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum ykkur fyrir sýnda tillitsemi,” segir í tilkynningunni.

Nýjustu fréttir

Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Uppfært: Veðurofsi í Eyjum – 50 m/s hviður á Stórhöfða
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.