Heimildarmyndin Háski �?? Fjöllin rumska fjallar um sjóflóðið í Neskaupstað 20. desember árið 1974 en þá breyttist veröld íbúa í Neskaupstað fyrir lífstíð. Tvö gríðarmikil snjóflóð féllu á bæinn með þeim afleiðingum að tólf manneskjur létust og stór hluti atvinnutækja byggðarlagsins eyðilagðist. Sorgin var ógnvænleg og höggið mikið, en æðruleysið er enn í fersku minni þeirra sem upplifðu þennan örlagaríka desembermánuð árið 1974. Alls staðar blasti við dauði og eyðilegging, en bæjarbúar voru þó strax samtaka um að gera það besta í aðstæðunum. Og það var gleði í sorginni, því líka björguðust manneskjur sem taldar höfðu verið af og fjölskyldur sameinuðust. Í Háska �?? Fjöllin rumska er rætt við á fjórða tug manna og birt myndefni sem aldrei hefur áður komið fyrir sjónir almennings. �?au sem lifðu naumlega af flóðin, aðstandendur þeirra sem létust, bæjarbúar og björgunarmenn. Af sjaldséðri einlægni ræða þau áfallið sem aldrei mátti tala of mikið um, en markaði þau fyrir lífstíð. �?essi einstaka heimildarmynd um snjóflóðin í Neskaupstað 20. desember 1974 mun seint líða úr minni þeirra sem á horfa. Verður myndin sýnd í Eyjabíó mánudaginn 11. desember nk. kl. 19:00.