Heimsóknarreglur yfir jólahátíðina á Hraunbúðum

Settar hafa verið upp ákveðnar heimsóknarreglur fyrir jólahátíðina á Hraunbúðum út frá tilmælum almannavarna. Frá þessu er greint í frétt á vef Hraunbúða.

Eftirfarandi reglur verða á Hraunbúðum um jólahátíðina:

  • Mælst er gegn því að íbúar fari í boð til ættingja yfir jólahátíðina, ef íbúi fer út gilda ákveðnar reglur um sóttkví sem hægt er að kynna sér nánar hjá stjórnendum Hraunbúða.
  • Eftir hádegi á aðfangadag verður opið fyrir heimsóknir milli kl 13:00-17:00
  • Eftir að íbúar og starfsfólk hafa snætt hátíðarkvöldverðinn kl 18 á aðfangadag er möguleiki á heimsóknum milli kl 20:00-22:00 og þá inn í einkarými íbúa/herbergi. Ath ekki er opið fyrir heimsóknir á matmálstímum.
  • Tveir gestir hafa leyfi til að heimsækja hvern íbúa aðfangadag (24. des), jóladag (25. des), á annan í jólum (26.des), á gamlárdag (31.des) og á nýársdag (1.jan) á tímabilinu 13-17.
  • Sömu tveir gestir mega koma þessa daga en þurfa að skrá sig fyrirfram á vakt@vestmannaeyjar.is.
  • Börn undir 18 ára hafa leyfi til að koma í heimsókn, en þá teljast þau annar af þessum tveimur gestum.
  • Munið að spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.
  • Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.
  • Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann á meðan heimsókn stendur.
  • Vinsamlega farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það sjálf.
  • Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.
  • Heimilt er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.
  • Undanþága frá þessu er aðeins veitt við mikil veikindi íbúa og þarf leyfi frá vaktstjóra

Vinsamlega EKKI koma inn á Hraunbúðir ef :

  • Þú ert í sóttkví eða einangrun.
  • Þú bíður eftir niðurstöðu úr sýnatöku.
  • Þú ert með flensulík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).
  • Þú varst erlendis fyrir minna en 14 dögum.

Mikilvægt er að þeir sem eru að koma í heimsókn sýni sérstaka aðgát varðandi fjölda þeirra sem þeir umgangast og sýni sérstaka aðgát nálægt eða forðist þá sem hafa verið erlendis og komið hafa frá höfuðborginni nýlega.

Nýjustu fréttir

Öflug barátta og samstaða skipar öndvegi í framtíð Eyjanna
Engin börn í vistun utan Vestmannaeyja
Grípa þarf til aukasundkennslu eftir langvarandi lokun
Suðurlandsslagur í Eyjum
Herjólfur til Landeyjahafnar seinni partinn
Sigurjón og Auðunn jafnir efstir á Skákþingi Vestmannaeyja 2026
Emil Gautason í lokahóp u-16
900 krónur urðu að 45 milljónum!
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.