Herjólfur fór í kvöld sína fyrstu ferð upp í Landeyjahöfn en um var að ræða prufuferð fyrir jómfrúarferðina á þriðjudag. Fjöldi fólks beið skipsins í Landeyjahöfn. Fréttamiðlar í Vestmannaeyjum hugðust fylgjast með siglingu skipsins en fréttamönnum var vísað frá borði að ósk Siglingastofnunnar. Samkvæmt nýjustu upplýsingum er Herjólfur á leið aftur inn í Landeyjahöfn, eftir að hafa siglt þaðan út fyrir skömmu.