Farþegaskipið Herjólfur lagði af stað í síðari áætlunarferð sína nú fyrir skömmu en skipið varð vélarvana við brottför fyrr í dag. Eftir að búið var að binda skipið við bryggju, fór kafari niður að skrúfu og stýri skipsins til að kanna hugsanlegar skemmdir. Þær reyndust engar og hélt skipið úr höfn tæpum tveimur klukkustundum á eftir áætlun.