Herjólfur lagstur að bryggju í Landeyjahöfn í fyrsta sinn
20. júlí, 2010
Kl. 16.35 lagðist Herjólfur að bryggju í Landeyjahöfn í fyrstu formlegu ferð sinni til hinnar nýju hafnar. Mikill fjöldi tók sér far með skipinu og enn fleiri tóku á móti því í Landeyjahöfn. Lúðrasveit Vestmannaeyja var meðal farþega og spilaði Eyjalögin. Og meðan beðið var eftir að skipið kæmi að bryggju var leikið á harmonikkur og trommur á bryggjunni og boðið uppá veitingar. Þegar farþegar Herjólfs gengu síðan frá borði var tekið á móti þeim með lófaklappi.