Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem mætir Bolton í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15:00 í dag. Undanfarna mánuði hefur Hermann mátt þola mikla bekkjarsetu en hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu gegn Heerenveen í vikunni. Hermann nýtti tækifærið vel og átti góðan leik auk þess sem hann skoraði þriðja mark Portsmouth. Tony Adams stjóri Portsmouth hefur því ákveðið að hafa Hermann áfram í byrjunarliðinu í dag.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst