Hildur Sólveig og Helga Kristín leiða lista Sjálfstæðisflokksins
Fyrr í kvöld var haldinn fundur í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins þar sem framboðslisti Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var kynntur og samþykktur. Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Helga Kristín Kolbeinsdóttir munu leiða lista Sjálfstæðisflokksins í sveitastjórnakosningunum í maí. Elliði Vignisson Bæjarstjóri er oddviti og bæjarstjórnarefni listans.
Undir forystu Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum hefur samfélagið okkar tekið framförum á öllum sviðum. Slíkt er ekki sjálfgefið og áfram þarf að vanda til verka. Framboðslistann skipa einstaklingar með víðtæka reynslu úr samfélaginu, reynslu sem mun nýtast við stjórnun sveitarfélagsins. Á listanum eru nýir einstaklingar, í bland við þá reynslumeiri. Fólk úr ólíkum áttum með ólíkan bakgrunn.
Elliði Vignisson er leiðtogi og bæjarstjóraefni listans. Að hans eigin beiðni skipar hann nú fimmta sæti á framboðslistanum.
Elliði Vignisson: �??Að vera leiðtogi snýst ekki um stöðu eða sæti, ætli maður sér að vera leiðtogi verður maður að vera tilbúinn til að hlusta og bregðast við. Eftir að hafa leitt listann úr fyrsta sæti í 12 ár tek ég alvarlega umræðu um þörfina á valddreifingu. �?g get að mörgu leyti tekið undir þá skoðun að það fylgir því lýðræðishalli að vera í senn í öruggasta sætinu, vera bæjarstjóraefni, oddviti og sá sem er með langmestu reynsluna. �?essu vil ég mæta með því að færa mig niður í framboðssæti sem að við lítum á sem sæti varabæjarfulltrúa. �?g vil líka líta á það sem skref til að skapa aukna sátt að víkja sætis fyrir ungt og nýtt fólk sem annars hefði ef til vill orðið að víkja af vettvangi bæjarmálanna. �?g kvíði því ekki að leiða listann sem varabæjarfulltrúi enda ríkir mikill einhugur hjá því góða fólki sem skipar framboðlistann. Saman ætlum við leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs og gera góðan bæ enn betri á komandi kjörtímabili.�??
Hildur Sólveig Sigurðardóttir skipar fyrsta sæti á listanum, en þetta er í fyrsta sinn í 20 ár sem kona skipar það sæti á framboðslista flokksins.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir: �??�?g er í senn auðmjúk og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með því að taka fyrsta sæti á framboðslistanum. �?að er ekki sjálfgefið að ungri konu sé falið hlutverk sem þetta og hvað þá að tvær konur skipi tvö efstu sætin. �?etta tel ég bæði sýna styrk okkar sem flokks sem og þann hug sem reynslumikið fólk í starfi okkar ber til ungs fólks og kvenna. Eitt af því sem helst einkennir okkur frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins er einlægur vilji til þess að halda áfram að gera samfélagið okkar betra og til að gera það mögulegt hikar fólk ekki við að víkja til hliðar eigin hagsmunum fyrir hagsmuni heildarinnar. Við viljum öll taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru af áhuga og festu, til heilla fyrir íbúa Vestmannaeyja.�??
Framboðslistinn er sem hér segir:
1.Hildur Sólveig Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari
2.Helga Kristín Kolbeins, skólameistari
3.Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri
4.Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri
5.Elliði Vignisson, oddviti og bæjarstjóri
6.Margrét Rós Ingólfsdóttir, félagsfræðingur
7.Sigursveinn �?órðarson, svæðisstjóri
8.Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri
9.Andrea Guðjóns Jónasdóttir, sjúkraliði
10.Gísli Stefánsson, æskulýðsfulltrúi
11.Agnes Stefánsdóttir, framhaldsskólanemi
12.Vignir Arnar Svafarsson, sjómaður
13.Klaudia Beata Wróbel, nemi og túlkur
14.Bragi Ingiberg �?lafsson, eldri borgari
Stjórn fulltrúaráðs

Nýjustu fréttir

Toppliðin takast á í lokaleik Olísdeildarinnar
Gular viðvaranir allvíða – Suðaustanhríð á Suðurlandi
Andri verður ekkert með í einvíginu gegn KA
Fékk plássið þegar auminginn úr Reykjavík gafst upp
Minnisvarði um botnlausa sýndarþörf Eyjamanna brátt vígður
Listaverk Ólafs Elíassonar komið á sinn stað
Hingað og þangað um Heimaey
Ágúst Þór stýrir brekkusöngnum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.