Horfa til úthafseldis vestur af Vestmannaeyjum
Sótt hefur verið um tilraunaleyfi fyrir úthafseldi vestur af Vestmannaeyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Iceland Offshore Salmon ehf. hefur sótt um tilraunaleyfi fyrir úthafseldi á svæði vestur af Vestmannaeyjum. Jafnframt er horft til Grindavíkurdýpis suður af Grindavík, að því er fram kemur í umfjöllun Fiskifrétta.

Kjartan Ólafsson, eigandi og framkvæmdastjóri Iceland Offshore Salmon ehf., er jafnframt stjórnarformaður Arnarlax og situr í stjórn Laxeyjar í Vestmannaeyjum. Þá á hann hlut í norska hafeldisfyrirtækinu Aqualoop þar sem hann situr einnig í stjórn.

„Við sjáum fyrir okkur að þetta verði eins konar iðnaðargarður þar sem hægt verður að rækta fisk í sjónum í stórum stíl,“ segir Kjartan í samtali við Fiskifréttir. Hann bendir á að Laxey framleiði stór laxaseiði sem ætluð séu til áframeldis í sjó. Að hans sögn er verkefnið liður í undirbúningi úthafseldis vestur af Vestmannaeyjum.

Nánara viðtal við Kjartan má lesa á vef Fiskifrétta.

Nýjustu fréttir

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja
Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.