
Undankeppni hönnunarkeppninnar Stíls fer fram á sviði Leikfélags Vestmannaeyja á morgun, 5. mars, klukkan 17.30. Þema keppninnar í ár er „Á tímum Viktoríu“ og munu þátttakendur sýna hönnun sem sækir innblástur í tískustíl þess tímabils.
Aðgangur að viðburðinum er ókeypis og eru allir velkomnir að mæta og fylgjast með
Sigurlið undankeppninnar tryggir sér sæti í lokakeppninni sem fram fer laugardaginn 14. mars í Digranesi í Kópavogi. Þar munu fulltrúar félagsmiðstöðva víðs vegar af landinu etja kappi.
Hönnunarkeppnin Stíll er haldin á vegum Samfés og er ætluð ungmennum í 8. til 10. bekk.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs