Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands

Eyjamaðurinn Arnar Pétursson stýrði Íslenska kvennalandsliðið í handbolta til sigurs, 28-27, gegn Svartfjallaland í þriðju umferð undankeppni EM 2026, á Ásvöllum í kvöld. Ísland er nú með tvö stig í 2.-4. sæti í riðli fjögur og Svartfjallaland fjögur stig á toppnum.  Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 13-13. Sandra […]

Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi

Farþegar sem hyggjast ferðast með Herjólfi föstudaginn 6. mars og fyrri hluta laugardags 7. mars eru hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum þar sem aðstæður til siglinga eru ekki hagstæðar. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi eru allar ferðir enn á áætlun til og frá Þorlákshöfn. Hins vegar gæti þurft að gera breytingar á áætlun ef […]

Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?

Uteyjar Karl Gauti 25

Karl Gauti Hjaltason, alþingismaður hefur lagt fram fyrirspurn til forsætisráðherra þar sem hann kallar eftir svörum um kostnað ríkisins vegna krafna um eignarhald á eyjum, hólmum, skerjum og dröngum utan strandlengju meginlands Íslands. Sérstaklega er spurt um mál sem tengjast Vestmannaeyjum. Vill fá heildarkostnaðinn upp á borðið Í fyrirspurninni er óskað eftir upplýsingum um heildarkostnað […]

Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn

Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman á aukafundi í gærmorgun vegna stöðunnar sem komin er upp varðandi dýpkunarmálin í Landeyjahöfn. Daginn áður hafði Vegagerðin tilkynnti um bilun í vél við hliðarskrúfu í Álfsnesinu þegar það var við dýpkun í Landeyjahöfn aðfaranótt mánudags og þurfti skipið frá að hverfa. „Kom fram hjá Vegagerðinni að væri til vél í […]

Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi

barn_ad_lesa

Niðurstöður nýrra stöðu- og framvinduprófa Matsferils í lesskilningi og stærðfræði munu verða birtar opinberlega eftir skólum samkvæmt reglugerð sem mennta- og barnamálaráðherra hefur nú gefið út. Jafnframt hafa niðurstöður lesfimi grunnskólabarna undanfarin fimm ár nú verið birtar í fyrsta sinn og eru þær birtar eftir sveitarfélögum. Frá þessu er greint í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu. […]

Undankeppni Stíls á morgun

Undankeppni hönnunarkeppninnar Stíls fer fram á sviði Leikfélags Vestmannaeyja á morgun, 5. mars, klukkan 17.30. Þema keppninnar í ár er „Á tímum Viktoríu“ og munu þátttakendur sýna hönnun sem sækir innblástur í tískustíl þess tímabils. Aðgangur að viðburðinum er ókeypis og eru allir velkomnir að mæta og fylgjast með Sigurlið undankeppninnar tryggir sér sæti í […]

Versnandi afkoma bæjarins

Eyjafréttir halda áfram að rýna í rekstrarreikning Vestmannaeyjabæjar í þeim tilgangi að stuðla að upplýsandi umræðu um þróun og stöðu fjármála bæjarins. Miklar sveiflur í rekstrarafkomu bæjarins Eins og súluritið sýnir hefur rekstrarafkoma Vestmannaeyjabæjar farið minnkandi á síðustu árum. Á tímabilinu 2008–2013 var rekstrarafgangur að meðaltali um 875 milljónir króna á verðlagi dagsins í dag. […]

Nýtt líf og Leikfélag Vestmannaeyja

Það er mér að kenna að ekki var brugðist við í tíma að fá einn af föstu pennunum til að stinga niður penna. Það dæmist því á undirritaðan að bjarga því sem bjargað verður og tilefnið kom upp í fangið eftir sjónvarpsgláp á laugardagskvöldið síðasta. Byrjaði á öðrum þætti Stjörnubíós á RÚV sem Ari Eldjárn […]

Tveir dæmdir eftir þjófnað úr dósagámi ÍBV

Tveir menn af erlendu bergi brotnir hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Suðurlands fyrir þjófnað og peningaþvætti eftir að hafa ítrekað stolið endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi ÍBV-íþróttafélags og innleyst skilagjaldið sjálfir. Dómur í málinu féll í gær og játuðu mennirnir báðir brot sín fyrir dómi. Samkvæmt dómi stal annar mannanna ítrekað endurvinnanlegum drykkjarumbúðum úr gámi félagsins […]

Aglow samvera í kvöld

LANDAKIRKJA

Aglow samvera verður í kvöld, miðvikudaginn 4. mars kl. 19.30 í safnaðarheimili Landakirkju. Við munum fá góðan gest sem talar til okkar. Tryggvi Hjaltason ætlar að koma og vera með okkur. Hann hefur  fengist við margt og hann er þekktur fyrir að hafa  margar og góðar skoðanir. En undanfarin misseri hefur hann verið að skoða […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.